Skora á SGS að slíta viðræðum við SNS og undirbúa verkfallsaðgerðir

Stéttarfélagið Framsýn skorar á aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands að slíta viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga og hefja undirbúning að sameiginlegum verkfallsaðgerðum í haust.

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar.
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar.
Auglýsing

Fram­sýn stétt­ar­fé­lag skorar á aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands Íslands, SGS, að slíta við­ræðum við ­Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga, SNS, og hefja und­ir­bún­ing að sam­eig­in­leg­um verk­falls­að­gerð­u­m í haust með það að mark­miði að „lama“ meðal ann­ars allt ­skóla­starf í leik- og grunn­skólum lands­ins. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Fram­sýnar varð­andi stöð­una í kjara­við­ræðum Starfs­greina­sam­bands­ins sem Fram­sýn á aðild að. 

Fá ekki sam­bæri­lega ein­greiðslu

Í til­kynn­ing­u Fram­sýnar segir að mikil reiði sé á meðal starfs­manna sveit­ar­fé­laga vegna ákvörð­un­ar ­samn­inga­nefnd­ar sveit­ar­fé­lag­anna að und­an­skilja starfs­menn Starfs­greina­sam­bands­ins frá því að fá sam­bæri­lega ein­greiðslu í ágúst og starfs­menn ann­arra stétt­ar­fé­laga og sam­banda.

­Samn­inga­nefnd Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga hefur samið við ákveðin sam­bönd og stétt­ar­fé­lög um að þeirra félags­menn sem starfa hjá sveit­ar­fé­lög­unum fái greiddar 105.000 ein­greiðslu miðað við fullt starf þann 1. ágúst 2019, sem greiðslu inn á vænt­an­legan kjara­samn­ing. 

Þegar aðild­ar­fé­lög S­GS ­kröfð­ust þess að félags­menn þeirra sem starfa hjá sveit­ar­fé­lög­unum fengju sömu­leiðis umrædda ein­greiðslu var því alfarið hafnað af hálfu samn­inga­nefndar sveit­ar­fé­laga með þeim rökum að Starfs­greina­sam­bandið hefði vísað kjara­deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara. 

Sú ákvörðun hefur verið harð­lega gagn­rýnd af SGS og Efl­ing sem skorað hafa á sveit­­ar­­fé­lögin að semja við þau um sömu greiðslur og aðrir munu fá þann 1. ágúst næst­kom­andi eða taka að öðrum kosti sjálf­­stæða ákvörðun um að greiða sínu fólki inn á vænt­an­­legan kjara­­samn­ing til jafns við annað starfs­fólk.

Auglýsing

Fram­sýn segir þessa ákvörðun sveit­ar­fé­lag­anna með miklum ólík­indum og þeim til mik­illar skammar gangi hún eft­ir. „Það er með öllu ólíð­andi og samn­inga­nefnd SNS til vansa að skilja sína lægst laun­uðu starfs­menn eina eftir úti í kuld­an­um, það er þá sem starfa eftir kjara­samn­ingi sveit­ar­fé­laga og Starfs­greina­sam­bands Íslands. Fram­sýn trúir því ekki fyrr en á reyn­ir, að sveit­ar­stjórn­ar­menn í Þing­eyj­ar­sýslum hygg­ist koma fram við sitt frá­bæra starfs­fólk með þessum hætt­i,“ segir í álykt­un­inni.

Skora á SGS að hefja und­ir­bún­ing að sam­eig­in­legum verk­falls­að­gerðum

Fram­sýn skorar því á samn­inga­nefnd sveit­ar­fé­lag­anna að end­ur­skoða afstöðu sína en félagið segir að umræður séu nú innan aðild­ar­fé­laga S­GS að boða til verk­falls í haust standi samn­inga­nefndin við boð­aða mis­munun á hækk­unum til starfs­manna sveit­ar­fé­laga í ágúst. 

„Það er von Fram­sýnar að sveit­ar­fé­lög í Þing­eyj­ar­sýslum virði starfs­menn sína jafnt og greiði öllum sínum starfs­mönnum þessa hækkun í ágúst sem eru með lausa samn­inga, ekki bara þeim sem staðið hafa á kant­inum meðan aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands­ins hafa unnið að því að ganga frá kjara­samn­ingi við SNS. Því miður hefur sú vinna ekki skilað árangri. Því skorar Fram­sýn á samn­inga­nefnd SNS að end­ur­skoða sína afstöð­u.“

Ef ekki þá skorar Fram­sýn á aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands Íslands að slíta við­ræðum við SNS og hefja und­ir­bún­ing að sam­eig­in­legum verk­falls­að­gerðum í haust með það að mark­miði að lama meðal ann­ars allt skóla­starf í leik- og grunn­skólum lands­ins.  „Það er ein­fald­lega ekki hægt að aðild­ar­fé­lög S­GS standi aðgerð­ar­laus á kant­inum á sama tíma og samn­inga­nefnd Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga ætlar kinn­roða­laust að mis­muna starfs­mönnum sveit­ar­fé­laga. ­Skammist ykk­ar!“ segir að lokum í álykt­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent