Pólsk yfirvöld falla frá kröfu um framsal eiganda Euro Market

Pólsk yfirvöld hafa dregið til baka kröfu um framsal eins eigenda Euro Market verslananna frá Íslandi til Póllands og fellt niður alþjóðlega handtökuskipun. Framsalskrafan var fyrst sett fram í desember 2017.

Landsréttur
Auglýsing

Pólsk ­yf­ir­völd hafa aft­ur­kallað fram­sals­kröfu á hendur pólskum manni, búsettum hér á landi, og fellt niður alþjóð­lega hand­töku­skip­un á hendur hon­um. Pólsk yfir­völd ósk­uðu fyrst eftir fram­sali manns­ins í des­em­ber 2017 en hann sat þá í gæslu­varð­hald­i hér á landi vegna rann­sóknar á skipu­lagðri brota­starf­semi. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Ekki heim­ilt að fram­selja mann sem sætir gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar ann­ars máls

­Mað­ur­inn er pólskur og er einn eig­enda pólsku smá­sölu­versl­un­ar­inn­ar E­uro ­Mar­ket en þrjár versl­anir undir því nafni hafa verið reknar á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. Pólsk yfir­völd ósk­uðu eftir því að mað­ur­inn yrði fram­seldur til Pól­lands um miðjan des­em­ber 2017.  Fram­sals­beiðni pól­skra yfir­valda byggði á því að pólsk yfir­völd höfðu til rann­sóknar aðild manns­ins að skipu­lagðri brota­starf­semi og ólög­legum flutn­ingi fíkni­efna milli landa.

Mað­ur­inn sætti þá gæslu­varð­haldi hér á landi vegna umfangs­mik­illar rann­sóknar lög­reglu á fíkni­efna­inn­flutn­ingi, pen­inga­þvætti, fjársvik­um, brotum á vopna­lög­um, lyfja­lögum og fíkni­efna­fram­leiðslu. Í svari við fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins seg­ist lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa nú lokið rann­sókn máls­ins og það verði nú sent ákæru­sviði.

Auglýsing

Í byrjun októ­ber 2018 stað­festi Hér­­aðs­­dómur Reykja­víkur ákvörðun dóms­­mála­ráð­herra um fram­­sal manns­ins til Pól­lands. Úr­skurð­­ur­ hér­aðs­dóms var hins vegar kærður til Lands­rétt­ur en verj­andi mans­ins, Stein­bergur Finn­­boga­­son, sagði að litið hefði verið fram hjá lög­­bundnum mann­úð­­ar­­sjón­­ar­mið­um í úrskurð­inum en hann benti á þetta væri nán­­ast eins og um fram­­sal á Íslend­ingi væri að ræða enda hafi skjól­­stæð­ingur hans búið hér í meira en tíu ár, ætti hér konu og barn, eigin atvinn­u­­rekstur og ýmsar aðrar rætur til sam­­fé­lags­ins. 

Síðar í sama mán­uði sner­i Lands­rétt­ur við úrskurði hér­aðs­dóms og felldi úr gildi ákvörðun dóms­mála­ráð­herra á grund­velli þess að sam­kvæmt fram­salslög­um væri ekki heim­ilt að fram­selja mann sem sæti gæslu­varð­haldi eða far­banni vegna rann­sóknar ann­ars máls en þess sem fram­sals­beiðni byggir á. 

Óhætt að fara til Pól­lands

Nú hafa pólsk yfir­völd hins vegar fellt niður alþjóð­lega hand­töku­skipun á hendur mann­inum og dregið til baka kröfu um fram­sal manns­ins frá Íslandi til Pól­lands. ­Stein­berg­ur, verj­andi manns­ins, ­seg­ir í sam­tali við Frétta­blað­ið, að skjól­stæð­ingur hans hafi fengið það sem kallað er griða­bréf frá pólskum yfir­völd­um. 

„Það þýðir að honum er óhætt að fara til Pól­lands og gefa skýrslu og eftir atvikum að koma svo aftur til Íslands,“ segir Stein­bergur og bætir við að mað­ur­inn þurfi að leggja út trygg­inga­greiðslu með lof­orði um að hann mæti til skýrslu­gjafar í Pól­landi.

Stein­bergur segir jafn­framt að þetta mál sé orðið með algerum ólík­ind­um. „Bara þessi fram­sals­hluti máls­ins hlýtur að hlaupa á tugum millj­óna í kostn­aði og svo fella Pól­verjar það bara nið­ur.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent