Héraðsdómur samþykkir flýtimeðferð í dómsmáli VR gegn Fjármálaeftirlitinu

VR gerir kröfu um að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins verði dæmd ógild.

1. maí 2019 - VR
Auglýsing

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sam­þykkti í dag flýti­með­ferð í dóms­máli VR gegn Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Í mál­inu stefnir VR Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna til ógild­ingar á stjórn­valds­á­kvörð­un. VR gerir kröfu um að dæmd verði ógild ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins frá 3. júlí síð­ast­liðnum þess efnis að stjórn­ar­menn Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna sem til­kynntir voru til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins þann 23. mars 2019, séu enn stjórn­ar­menn líf­eyr­is­sjóðs­ins.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu VR sem félagið sendi frá þér í dag.

Fram kom í fréttum föstu­dag­inn síð­ast­lið­inn að full­­­trú­ar VR hefðu afhent Hér­­aðs­­dómi Reykja­vík­­­ur stefnu á hend­ur Fjár­­­­­mála­eft­ir­lit­inu. Stjórn VR sam­­þykkti að stefna stofn­un­inni fyr­ir að við­­ur­­­­kenna ekki lög­­­­­mæti ákvörð­unar full­­­trú­a­ráðs VR um að aft­­­ur­­­kalla umboð stjórn­­­­­ar­­­manna í Líf­eyr­is­­­sjóði verzl­un­­­ar­­­manna.

„Mark­miðið er fyrst og fremst að fá þenn­an úr­sk­­­urð FME dæmd­an ógild­an,“ sagði Ragn­ar Þór í sam­tali við mbl.is og vís­aði til þess að FME lít­ur svo á að ákvörðun um aft­­­ur­köll­un­ina væri ekki gild þar sem hún hefði ekki, að mati stofn­un­­­ar­inn­­­ar, verið tek­in af stjórn VR eins og sam­­þykkt­ir Líf­eyr­is­­­sjóðs verzl­un­­­ar­­­manna gera ráð fyr­­­ir.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu VR segir að stjórn­valds­á­kvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins hafi verið haldin veru­legum ann­marka, bæði að formi og efni til, og sé þannig ógild­an­leg. „Má þar meðal ann­ars nefna að Fjár­mála­eft­ir­lit­inu bar að veita VR stöðu aðila í stjórn­sýslu­mál­inu en það var ekki gert. Þá sinnti Fjár­mála­eft­ir­litið ekki til­kynn­ing­ar­skyldu sinni þar sem VR var ekki til­kynnt að málið væri til með­ferðar og ekki heldur um nið­ur­stöðu máls­ins. Þá við­hafði Fjár­mála­eft­ir­litið ekki full­nægj­andi rann­sókn við með­ferð máls­ins. Fjár­mála­eft­ir­litið afl­aði jafn­framt ekki nauð­syn­legra gagna og var ákvörðun þess því byggð á röngum upp­lýs­ing­um. Full­nægj­andi rann­sókn hefði leitt í ljós að full­trúa­ráð VR hefur fengið fram­selda heim­ild til þess að skipa stjórn­ar­menn í Líf­eyr­is­sjóð verzl­un­ar­manna frá stjórn VR. Þá var VR ekki gef­inn kostur á að kynna sér gögn máls eða koma að frek­ari upp­lýs­ingum um máls­at­vik og var þannig brotið gegn and­mæla­rétti VR. Ljóst er að stjórn­valds­á­kvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var haldin veru­legum ann­mörkum sem leiða til þess að ógilda beri ákvörð­un­ina,“ segir í til­kynn­ingu VR.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent