Miðflokkurinn þriðji stærsti flokkurinn

Miðflokkurinn er hástökkvarinn í nýrri könnun Zenter rannsókna og mælist nú þriðji stærsti flokkurinn með 13,4 prósent. Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst saman á milli kannana og mælist nú um 20 prósent.

miðflokkurinn standandi 25. maí
Auglýsing

Mið­flokk­ur­inn mælist nú þriðji stærsti flokk­ur­inn á Alþingi og mælist nú stærri en Píratar og VG. Þá mælist Sam­fylk­ingin næst stærsti flokk­ur­inn með 14,4 pró­sent fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram stærsti flokk­ur­inn þó að fylgi hans drag­ist saman á milli kann­anna og mælist nú 20,5 pró­sent. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar sem Zenter ­rann­sóknir gerðu fyr­ir Frétta­blaðið

Ekki ánægður með að sjá tölur undir síð­ustu kosn­inga­nið­ur­stöðum

­Fylg­i ­Sjálf­stæð­is­flokks­ins dregst saman á milli kann­ana og mælist nú 20,5 pró­sent. Í síð­ustu könnun Zenter könnun í júní mæld­ist flokk­ur­inn 22,6 pró­sent. Þá er fylgi flokks­ins nú nærri 5 pró­sentum lægra en það var í kosn­ingum 2017. 

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir í sam­tali við Frétta­blaðið um nið­ur­stöð­ur­ könn­un­ar­inn­ar að almennt sé búist við því inn á miðju kjör­tíma­bili að rík­i­s­tjórn­ar­flokk­arnir gef­i eitt­hvað eft­ir. „Haf­andi sagt það þá er það alveg aug­ljóst að við erum ekki ánægð með að sjá tölur sem eru undir síð­ustu kosn­inga­nið­ur­stöð­um. Við teljum að við séum að vinna góða vinnu sem muni skila sér þegar upp er stað­ið,“ segir Bjarni.

Auglýsing

Í könn­un MM­R ­fyrr í mán­uð­inum mæld­ist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins 19 pró­sent en það hefur ekki mælst lægra í könn­un­um MM­R eftir banka­hrun. Fyrri botn flokks­ins var 19,5 pró­sent fylgi í jan­úar 2016. 

Mið­flokk­ur­inn mælist ­með­ 13,4 pró­sent fylgi

Í könnun Zenter bætir Mið­flokk­ur­inn við sig mestu fylgi eða alls 3,6 pró­sentum og mælist nú með 13,4 pró­sent. ­Sam­fylk­ing­in ­mælist með nán­ast sama fylgi og í síð­ustu könnun og er nú annar stærsti flokkur lands­ins með 14,4 pró­sent fylg­i. P­íratar sem voru næst stærsti flokk­ur­inn í könnun Zenter í júní  missa nú nokk­urt fylgi og fá nú 12,3 pró­sent. Við­reisn bæt­ir ­lít­il­lega við sig fylgi á milli kann­ana og mælist nú með 10,6 pró­sent. 

Vinstri grænir mæl­ast með nán­ast sama fylgi og í síð­ustu könnun og mæl­ast nú með 12,9 pró­sent.  Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig 1,1 pró­sentu­stigi og mælist nú 8,6 pró­sent. 

Fylgi Flokks fólks­ins heldur áfram að drag­ast saman og mælist flokk­ur­inn nú með 3,2 pró­sent en flokk­ur­inn fékk 4,3 ­pró­sent í júní. Aðr­ir ­flokkar fá 4,6 pró­sent og þar af fær Sós­í­alista­flokk­ur­inn 2,7 pró­sent. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn ná ekki til yngsta ald­urs­hóps­ins 

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar má sjá að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur aðeins stuðn­ings 7,2 pró­senta hjá yngsta ald­urs­hópn­um, sem er 18 til 24 ára. Í öðrum ald­urs­hópum er stuðn­ingur við flokk­inn á bil­inu 19,3 til 24,1 pró­sent. Svipað má segja um Mið­flokknum en stuðn­ingur við hann er um 4 til 5 pró­sent í yngstu ald­urs­hóp­unum en 21,5 pró­sent hjá 45-54 ára. 

Vinstri græn, Píratar og Við­reisn njóta hins vegar mests stuðn­ings meðal yngstu kjós­end­anna. Rúm 22 pró­sent í yngsta ald­urs­hópnum styðja Vinstri græn og rúm 19 pró­sent Pírata.

Könn­unin var fram­kvæmd 24. til 26. júlí síð­ast­lið­inn og var send á tvö þús­und ein­stak­linga í könn­un­ar­hóp Zenter ­rann­sókna. Svar­hlut­fallið var 45 pró­sent en gögnin voru vigtuð eftir kyni, aldri og bústu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent