Kjósa um sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi í næsta mánuði

Kosið verður um sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi í lok næsta mánaðar. Samkvæmt núverandi skipulagi sitja 113 fulltrúar í stjórnum, ráðum eða nefndum á vegum sveitarfélaganna en með nýja skipulaginu verður fulltrúum fækkað niður í 42.

Djúpivogur
Djúpivogur
Auglýsing

Kosið verður um sam­ein­ingu Fljóts­dals­hér­aðs, Seyð­is­fjarð­ar, Borg­ar­fjarðar eystri og Djúpa­vogs í lok næsta mán­að­ar. Ef til sam­ein­ingar kemur verður núver­andi stjórn­skipu­lagi sveita­stjórn­anna breytt. 

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Róberti Ragn­ars­syni, verk­efna­stjóra sam­ein­ingar Sveit­ar­fé­lags­ins Aust­ur­lands, og Birni Ingi­mars­syni, bæj­ar­stjóra á Fljóts­dals­hér­aði og for­manns sam­starfs­nefndar um sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga á Aust­ur­landi.

Ný teg­und stjórn­skipu­lags verður sem sagt tekin í gagnið verði af sam­ein­ingu þess­ara fjög­urra sveit­ar­fé­laga. Í til­kynn­ing­unni segir að  stjórn­skipu­lagið byggi á ein­faldri og skil­virkri stjórn­sýslu, ásamt vald­dreif­ingu til heima­stjórna sem fara með til­tekin nær­þjón­ustu­verk­efni. Mark­miðið með heima­stjórn­unum sé að tryggja áhrif íbúa á nær­þjón­ustu og bregð­ast við þeirri gagn­rýni að jað­ar­byggðir missi áhrif í sam­ein­uðum sveit­ar­fé­lög­um.

Auglýsing

Full­trúar úr 113 í 42

Ell­efu kjörnir full­trúar munu taka sæti í bæj­ar­stjórn og verða þrjú fagráð starf­andi. Fimm full­trúar verða í byggða­ráði, sjö í fjöl­skyldu­ráði og sjö í umhverf­is­ráði. Þar að auki verða fjórar heima­stjórnir og ýmis not­enda­ráð, svo sem ung­menna-og öld­unga­ráð. 

Sam­kvæmt núver­andi skipu­lagi sitja 113 full­trúar í stjórn­um, ráðum eða nefndum á vegum sveit­ar­fé­lag­anna fjög­urra. Með nýja skipu­lag­inu verður full­trúum fækkað niður í 42 og verður hlut­verk þeirra og ábyrgð veiga­meira en áður, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Hvert ráð mun funda viku­lega en hug­myndin með ráðunum er að stytta boð­leiðir og flýta afgreiðslu mála.

Bæj­ar­stjórnin fram­selur hluta af valdi sínu til heima­stjórna

Sam­kvæmt nýja skipu­lag­inu fram­selur bæj­ar­stjórnin hluta af valdi sínu til heima­stjórna en þessi til­högun byggir á til­rauna­á­kvæði um stjórn og stjórn­skipu­lag ein­stakra sveit­ar­fé­laga í sveit­ar­stjórn­ar­lögum frá árinu 2011. Ef af sam­ein­ingu verður er það í fyrsta sinn sem þetta ákvæði er nýtt.

Heima­stjórnir verða fjórar og munu þrír full­trúar munu sitja í hverri heima­stjórn, tveir sem kosnir eru beinni kosn­ingu af íbúum á hverju svæði fyrir sig og einn sem á sæti í bæj­ar­stjórn. Full­trú­arnir þrír eru allir jafn rétt­há­ir. Í til­kyn­inng­unni segir að með þessu móti verði sterk teng­ing á milli bæj­ar­stjórnar og heima­stjórna.

Aðal­skipu­lag áfram í höndum bæj­ar­stjórnar

Heima­stjórnir munu sinna ýmsum nær­þjón­ustu­verk­efnum og fara meðal ann­ars með afgreiðslu deiliskipu­lags á sínu svæði sem er veiga­mik­ill þáttur í hverju sveit­ar­fé­lagi. Aðal­skipu­lag verður hins vegar áfram í höndum bæj­ar­stjórn­ar.

Þá mun bæj­ar­stjórnin setja umhverf­is­stefnu fyrir sam­einað sveit­ar­fé­lag í heild sinni en verk­efni nátt­úru­vernd­ar­nefnda verða á hendi heima­stjórna á hverju svæði fyrir sig. Í því felst meðal ann­ars að heima­stjórnir hafa mikil áhrif á ákvarð­anir um frið­lýs­ingar og fram­kvæmdir í nærum­hverf­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent