Metár hjá Icelandair það sem af er ári

Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega til Íslands en það sem af er ári.

bogi nils bogason
Auglýsing

Icelandair hefur aldrei flutt fleiri far­þega til Íslands og það sem af er ári sam­an­borið við fyrri ár. Þetta kemur fram í flutn­inga­tölum fyrir sept­em­ber­mánuð sem félagið birti í Kaup­höll í dag.

Á þessu ári hefur Icelandair lagt höf­uð­á­herslu á ferða­manna­mark­að­inn til Íslands og á móti dregið úr vægi skiptifar­þega, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá félag­in­u. 

Á und­an­förnum tveimur árs­fjórð­ungum hefur félagið tapað um 90 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 11 millj­örðum króna, en kyrr­setn­ingin á 737 Max vél­un­un­um, á alþjóða­vísu, hefur leitt til mik­illa erf­ið­leika fyrir rekstur félags­ins.

Auglýsing

Þrátt fyrir þetta hefur félag­inu tek­ist að halda uppi háu þjón­ustu­stigi, og reynt hefur fremsta megni að láta erf­ið­leika ekki bit­ana á við­skipta­vin­un­um.

„Á háönn sum­ars­ins, eða frá byrjun júní og út sept­em­ber, fjölg­aði far­þegum til Íslands um 30 pró­sent. Það sem af er ári hef­ur Icelandair flutt tæp­lega 1,5 milljón far­þega til Íslands sem er um 27 pró­sent aukn­ing. Í sept­em­ber fjölg­aði far­þegum félags­ins til Íslands um 18 pró­sent sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra og voru þeir yfir 170 þús­und sam­tals. Einnig fjölg­aði far­þegum frá Íslandi um 18 pró­sent og námu þeir alls rúm­lega 54 þús­und. Í sam­ræmi við breytt­ar áherslur á þessu ári fækk­aði skiptifar­þegum félags­ins í sept­em­ber um 17 pró­sent. Heild­ar­far­þegum félags­ins það sem af er ári hefur fjölgað um 9 pró­sent á milli ára,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins. 

Í henni segir jafn­framt að mik­ill árangur hafi náðst í því að bæta stund­vísi í milli­landa­starf­semi félags­ins með styrk­ingu á innviðum og breyttum vinnu­ferl­um. „Komu­stund­vísi í sept­em­ber var 75% sam­an­borið við 69% í sept­em­ber í fyrra, þrátt fyrir álag og breyt­ing­ar á leiða­kerf­inu vegna kyrr­setn­ingar MAX vél­anna. Icelandair mun halda áfram að leggja áherslu á ferða­manna­mark­að­inn til Íslands í vet­ur. Sveigj­an­leiki í leið­ar­kerfi félags­ins gerir því kleift að færa tíðni á milli áfanga­staða og nýta flug­flot­ann á leiðum þar sem eft­ir­spurn eftir ferð­um til Íslands er áætluð mik­il,“ segir í til­kynn­ing­u. 

Eigið fé Icelandair var um 430 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um mitt þetta ár, eða um 55 millj­arðar króna. Áætl­anir félags­ins gera ráð fyrir að kyrr­setn­ingu Max véla verði aflétt í byrjun næsta árs, en óvissa er um það ennþá hvenær það verð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent