Samherji krefur Seðlabankann um 322 milljónir í bætur

Útgerðarfyrirtækið Samherji hefur krafið Seðlabankann um bætur vegna aðgerða bankans gegn fyrirtækinu.

þorsteinn már.jpg
Auglýsing

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Sam­herji krefur Seðla­banka Íslands um 322 millj­ónir króna í bætur vegna aðgerða bank­ans gegn fyr­ir­tæk­in­u. 

Greint var frá þessu í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Skaða­bóta­málið var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í sept­em­ber, en krafan bygg­ist meðal ann­ars á miklum kostn­aði sem mála­rekstur Seðla­banka Íslands gegn fyr­ir­tæk­inu hafi haft í för með sér. 

Auglýsing

Þar af 247 millj­ónir vegna lög­manna og end­ur­skoð­enda, og 59 millj­ónir vegna óbeins kostn­að­ar. 

Hæsti­réttur Íslands komst að þeirri nið­ur­stöðu í nóv­em­ber í fyrra að Seðla­bank­anum hafi ekki verið heim­ilt að leggja stjórn­valds­sekt á Sam­herja vegna brota á gjald­eyr­is­lögum sem Seðla­bank­inn sak­aði Sam­herja um. 

Eins og greint var frá í morgun, þá hefur Seðla­­bank­inn sent frá sér til­­kynn­ingu vegna umfjöll­unar frétta­miðla um mein­tan gagna­­leka. „Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum hefur rann­­sókn innri end­­ur­­skoð­anda Seðla­­bank­ans leitt í ljós að starfs­­maður Seðla­­bank­ans og frétta­­maður Rík­­is­út­­varps­ins áttu í sam­­skiptum áður en hús­­leit fór fram hjá Sam­herja hf. og tengdum aðil­­um.

Nánar til­­­tekið fólust sam­­skiptin í því að frétta­­mað­­ur­inn sendi upp­­kast að frétt með tölvu­­pósti þar sem hús­­leit­­ar­innar var getið – dag­inn áður en hún fór fram. Rann­­sókn bank­ans sýndi hins vegar að þessum pósti var ekki svar­að. Það er því ekk­ert sem liggur fyrir um að upp­­lýs­ingum hafi verið lekið frá Seðla­­bank­­anum enda ljóst að téð hús­­leit var á vit­orði margra,“ segir í til­­kynn­ing­unni.

Þá segir að for­­sæt­is­ráðu­­neytið hafi upp­­lýst lög­­­reglu um nið­­ur­­stöður rann­­sóknar Seðla­­bank­ans hvað þetta varðar án þess þó að í því hafi falist nokkur efn­is­­leg afstaða eins og fram hafi komið í bréfi ráðu­­neyt­is­ins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent