Drífa: Brýtur í bága við allar grunnstoðir stéttarfélaga

Forseti ASÍ segir það vekja verulegar áhyggjur að stéttarfélag hafi samið um kaup fyrir flugliða áður en nokkur flugliði hafi verið ráðinn hjá Play og erfitt að sjá hvort einhver flugliði hafi komið að eigin samningi.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Auglýsing

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, gerir kjara­mál hjá nýju lággjalda­flug­fé­lagi, Play, að umræðu­efni í föstu­dag­spistli sínum í dag.

„Það er fátt sem land­inn kann betur að meta en ódýr flug­far­gjöld til útlanda. En ef far­gjaldið er of lágt eru það aðrir sem greiða flug­mið­ann,“ skrifar hún.

Vísar hún í fréttir gær­dags­ins en greint var frá því að launa­kostn­aður Play yrði 27 til 37 pró­sent minni en var hjá WOW air. „Aðal­eig­andi og for­stjóri þess flug­fé­lags sem fór svo eft­ir­minni­lega á haus­inn í mars síð­ast­liðnum og kost­aði 2000 manns vinn­una sagði launa­kostn­að­inn hafa farið með félagið á haus­inn.“

Auglýsing

Ekki full­trúar stétt­ar­innar sem semja um kaup og kjör

Drífa segir að ekk­ert sé fjær lagi eins og alþjóð viti – hann hafi verið alveg ein­fær um að koma því á hausinn, og er hún þarna að tala um Skúla Mog­en­sen. Full ástæða sé til að velta því fyrir sér hvernig hægt verði að greiða enn lægra verð fyrir vinnu­fram­lag en gert hafi verið hjá WOW og nú sé gert hjá Icelanda­ir. Ýmsar vís­bend­ingar hafi komið fram í kynn­ing­ar­efni fyrir fjár­festa þar sem á að vera „betri nýt­ing“ á áhöfn­um, sem sagt meiri vinna fyrir sömu laun. Vísað sé í kjör sem flug­liðum býðst á Írlandi en það hafi hingað til verið bæki­stöð flug­fé­laga sem haldi kostn­aði niðri með lágum launum og mik­illi vinnu.

„Það sem vekur veru­legar áhyggjur er að stétt­ar­fé­lag hefur samið um kaup fyrir flug­liða áður en nokkur flug­liði hefur verið ráð­inn og erfitt að sjá hvort ein­hver flug­liði hafi komið að eigin samn­ingi. Það eru því sann­an­lega ekki full­trúar stétt­ar­innar sem semja um kaup og kjör heldur standa frammi fyrir orðnum hlut. Þetta brýtur í bága við allar grunn­stoðir stétt­ar­fé­laga og rétt þeirra til þess að tryggja hags­muni félags­manna sinna með kjara­samn­ing­um,“ skrifar Drífa.

Hún segir að grunn­hugs­unin sé að vinn­andi fólk komi sér saman í stétt­ar­fé­lag, kjósi sér full­trúa sem setj­ist svo við samn­inga­borð­ið. Stétt­ar­fé­lögin bind­ist svo heild­ar­sam­tökum til að búa til enn meiri slag­kraft og njóta sam­stöð­unnar þegar í harð­bakk­ann slær.

Verða að virði leik­reglur hins íslenska vinnu­mark­aðar

„Það er vænt­an­lega óþarfi að rifja upp hversu miklu máli þetta skipti þegar WOW fór á haus­inn og ASÍ gat hlaupið undir bagga með Flug­freyju­fé­lag­inu sem greiddi félags­mönnum fyr­ir­fram upp í kröfur þeirra á ábyrgða­sjóð launa til að tryggja að fólk hefði til hnífs og skeiðar þegar launa­greiðslur brugð­ust.

Það er skýr krafa til nýrra fyr­ir­tækja á mark­aði að þau virði leik­reglur hins íslenska vinnu­mark­að­ar. Und­ir­boð í kjörum kemur öllum við og bitnar á end­anum á sam­fé­lag­inu öllu, bæði launa­fólki og þeim fyr­ir­tækjum sem virða leik­regl­ur,“ segir Drífa að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent