„Samstarfið hefti mig í að vinna af fullum krafti“

Andrés Ingi Jónsson útskýrir ákvörðun sína að hætta í þingflokki Vinstri grænna.

Andrés Ingi Jónsson
Andrés Ingi Jónsson
Auglýsing

„Síð­ast­liðin tvö ár hef ég upp­lifað að sam­starfið hefti mig í að vinna af fullum krafti fyrir þeim hug­sjónum sem ég var kos­inn fyr­ir. Nú er svo komið að ég tel full­reynt að ég geti sinnt þing­störfum eftir sam­visku minni og sann­fær­ingu við núver­andi aðstæð­ur.“

Þetta ritar Andrés Ingi Jóns­son, þing­maður utan flokka, á Face­book-­síðu sinni en fram kom í fréttum í dag að hann hefði sagt sig úr þing­flokki Vinstri grænna.

Hann segir enn fremur í færslu sinni á Face­book að um þessar mundir séu tvö ár síðan flokks­ráð Vinstri grænna sam­þykkti að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn. „Sú ákvörðun var nógu umdeild til að fjöldi félaga sagði skilið við hreyf­ing­una. Þrátt fyrir að ég hafi ekki stutt rík­is­stjórn­ina á flokks­ráðs­fundi ákvað ég að starfa áfram innan þing­flokks VG – ekki síst til að styðja hina ágætu ráð­herra Vinstri grænna til góðra verka.“

Auglýsing

„Eins og við var að búast hefur verið nokkur áskorun að takast á við sam­skipti og sam­starf í þing­flokknum eftir þann ágrein­ing sem stjórn­ar­sam­starfið skap­aði. Þó tel ég að við höfum öll lagt okkur fram um að vinna sem best sam­an.

Það hafa á þessu tíma safn­ast upp dæmi sem mér þykja til marks um það sem ég ótt­að­ist í upp­hafi: að Vinstri græn ættu sífellt erf­iðar með að veita sam­starfs­flokk­unum mót­spyrnu og stjórn­ar­sam­starfið færð­ist enn fjær því sem flokk­ur­inn ætti að standa fyr­ir. Vissu­lega höfum við náð árangri en oft hafa mála­miðl­anir fallið fjarri okkar hug­sjón­um, eins og birt­ist til að mynda í stjórn­ar­frum­varpi um útlend­inga á liðnu vori. Aðkallandi aðgerðir til að sporna við ham­fara­hlýnun hafa ekki gengið jafn langt og ég tel nauð­syn­legt og sjálf­sagt í rík­is­stjórn undir for­ystu grænnar hreyf­ing­ar,“ skrifar hann.

Í lok færsl­unnar þakkar hann félögum sínum í þing­flokki Vinstri grænna sam­fylgd­ina.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent