Forseti Alþingis minnist Helga Seljan

Steingrímur J. Sigfússon minntist fyrrverandi þingmannsins, Helga Seljan, á þingi í dag. „Helgi var einkar vel látinn í hópi þingmanna fyrir sitt glaða skap, heiðarleika og hreinskiptni í samstarfi, svo og fyrir dugnað og alúð við þingstörfin.“

Helgi Seljan og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Helgi Seljan og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Auglýsing

For­seti Alþing­is, Stein­grímur J. Sig­fús­son, minnt­ist Helga Selj­an, fyrr­ver­andi alþing­is­manns, við upp­haf þing­fundar í dag en Helgi and­að­ist á Land­spít­al­anum í Foss­vogi, tæp­lega 86 ára gam­all, síð­ast­lið­inn þriðju­dag, 10. sept­em­ber.

Auglýsing

Hér fyrir neðan má lesa minn­ing­ar­orð Stein­gríms um Helga.

Helgi Seljan Frið­riks­son var fæddur á Eski­firði 15. jan­úar 1934. For­eldrar hans voru Frið­rik Árna­son, verka­maður þar, og kona hans, Elín­borg Kristín Þor­láks­dóttir hús­móð­ir. Aðeins nokk­urra mán­aða gam­all var Helgi tek­inn í fóstur hjá hjón­unum Jóhanni Björns­syni, bónda í Selja­teigi í Reyð­ar­firði, og konu hans, Jóhönnu Helgu Bene­dikts­dóttir hús­móð­ur, og ólst hann upp á þeim bæ og tók nafn sitt af því.

Helgi lauk kenn­ara­prófi 19 ára gam­all og gerð­ist þegar kenn­ari á heima­slóðum fyrir aust­an, fyrst á Búðum í Fáskrúðs­firði í tvö ár, en færði sig síðan 1955 að barna- og ung­linga­skól­anum á Búð­ar­eyri í Reyð­ar­firði. Hann var skip­aður skóla­stjóri þar 1962 og gegndi því starfi þar til hann var kos­inn á þing.

Helgi Seljan skip­aði sér ungur í raðir sós­í­alista, var í fram­boði þegar í alþing­is­kosn­ing­unum 1956 í Suð­ur­-­Múla­sýslu, aðeins 22 ára gam­all, og var jafnan síðar ofar­lega á lista Alþýðu­banda­lags­ins í Aust­ur­lands­kjör­dæmi. Hann var hrepps­nefnd­ar­maður í Reyð­ar­firði í 12 ár. Helgi Seljan varð lands­kjör­inn þing­maður 1971 eftir ágætan árangur flokks hans í kjör­dæm­inu það sumar og síðar kjör­dæma­kjör­inn þegar Alþýðu­banda­lagið varð stærsti flokk­ur­inn í Aust­ur­lands­kjör­dæmi 1978. Helgi sótt­ist ekki eftir æðstu met­orðum í flokki sínum þótt honum stæðu þau til boða heldur kaus fremur starf alþing­is­manns­ins. Helgi sat sam­fellt á Alþingi til 1987 er hann ákvað að sækj­ast ekki eftir end­ur­kjöri. Hann sat jafnan í efri deild og var for­seti hennar 1979–1983 en var jafn­framt oft vara­for­seti þar og í sam­ein­uðu Alþingi. Sæti vara­manns tók Helgi tví­veg­is, fyrst í febr­úar 1958 og í seinna sinn haustið 1969. Helgi var aldurs­for­seti fyrr­ver­andi þing­manna í þeim skiln­ingi að lengst var liðið síðan hann hafði fyrst tekið sæti í þessum sal, tæp 62 ár, en raunar þá sem vara­mað­ur. Hann sat sam­tals á 20 lög­gjaf­ar­þing­um.

Helgi Seljan var þegar frá upp­hafi þing­setu sinnar tals­maður flokks síns í félags- og vel­ferð­ar­málum og sat í nefndum sem við þá mála­flokka feng­ust. Mörgum fram­fara­málum fatl­aðra og öryrkja kom hann áleiðis og önnur fékk hann til umræðu og athug­unar á þing­inu. Jafn­framt lét hann sér mjög annt um hag kjós­enda sinna og kjör­dæm­is­ins og sinnti því vel. Meg­in­hluta þing­fer­ils síns sat hann í banka­ráði Bún­að­ar­bank­ans og stjórn Stofn­lána­deildar land­bún­að­ar­ins.

Er Helgi Seljan ákvað að láta af þing­mennsku gerð­ist hann félags­mála­full­trúi hjá Öryrkja­banda­lagi Íslands og síðar fram­kvæmda­stjóri þess. Sat hann í mörgum nefndum og ráðum sem feng­ust við mál­efni öryrkja og skrif­aði margt um hags­muna­mál þeirra í blöð. Þá starf­aði Helgi einnig ötul­lega með eldri borg­ur­um.

Áfeng­is­varnir og bind­ind­is­mál voru alla tíð eitt mesta bar­áttu­mál Helga. Þegar á skóla­árum skip­aði hann sér þar í for­ustu­sveit og vann þeirri hug­sjón með fórn­fúsu starfi og skrifum alla ævi.

Helgi átt létt með að yrkja, var söngvinn og hafði gaman af að skemmta fólki með græsku­lausum gam­an­málum og leik­list. Þess nutu þing­menn, starfs­menn þings­ins og raunar margir lands­menn. Ófáir voru þeir heim­il­is­menn á dval­ar- og hjúkr­un­ar­heim­ilum sem nutu þess að þeir vin­irnir Helgi og Kar­vel Pálma­son töldu ekki eftir sér, bæði á meðan og eftir að þing­mennsku þeirra lauk, að koma og létta mönnum lund með söng og gam­an­mál­um.

Helgi var einkar vel lát­inn í hópi þing­manna fyrir sitt glaða skap, heið­ar­leika og hrein­skiptni í sam­starfi, svo og fyrir dugnað og alúð við þing­störf­in. Hygg ég ekki ofmælt að hann hafi verið einn vin­sæl­asti og vin­flesti þing­mað­ur­inn á sinni tíð og gekk þvert á flokks­bönd. Það segir nokkuð um mann­inn sem við minn­umst hér í þessum sal í dag.

Ég bið þing­heim að minn­ast Helga Selj­ans, fyrr­ver­andi alþing­is­manns, með því að rísa úr sæt­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent