Boeing stöðvar framleiðslu 737 Max vélunum

Alþjóðleg kyrrsetning hefur verið fyrir hendi frá því í lok árs, en samtals létust 346 í tveimur flugslysum sem rakin hafa verið til galla í Max vélunum.

boeing.jpg
Auglýsing

Boeing, stærsti flug­véla- og loft­fara­fram­leið­andi heims, hefur stöðvað fram­leiðslu á 737 Max vél­un­um. Þær hafa verið kyrr­settar frá því 28. mars, um allan heim, og því verið ónot­hæfar í far­þega­flug­i. 

Eitt þeirra flug­fé­laga sem hafa orðið fyrir miklu tjóni er Icelanda­ir, en í síð­ustu til­kynn­ingu frá félag­inu þar sem fjallað var um kyrr­setn­ing­una kemur fram að félagið geri ráð fyrir að Max vél­arnar komi til notk­unar í mars. Ekki liggur fyrir enn hvenær kyrr­setn­ingu verður aflétt, og er það meðal ann­ars þess vegna sem fram­leiðslan hefur tíma­bundið verið stöðv­uð.

Um 40 vélar hafa komið úr fram­leiðslu á mán­uði, hjá Boeing, en þegar mest var voru þær 53. Boeing er stærsta útflutn­ings­fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna og eru starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins um 80 þús­und á Seattle svæð­inu, þar sem hjartað í fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið frá stofn­un.

Auglýsing



Ástæðan fyrir kyrr­setn­ing­unni eru flug­slys í Indónesíu 29. októ­ber í fyrra og í Eþíópíu 13. mars, en í þeim lét­ust allir um borð, sam­tals 346. Frum­nið­ur­stöður rann­sókna í lönd­unum fyrr­nefndu benda til þess að vél­arnar hafi verið með gallað MCAS-­kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi, og því hafi þær tog­ast til jarðar með fyrr­nefndu afleið­ing­um.

Fjöl­margar athuga­semdir hafa einnig komið fram í rann­sóknum ann­arra á Boeing, þar á meðal hjá alrík­is­lög­regl­unni FBI. Auk þess er Banda­ríkja­þing ennþá að rann­saka félagið og hvernig það stóð að upp­lýs­inga­gjöf til banda­rískra flug­mála­yf­ir­valda og eft­ir­lits­að­ila. Í yfir­heyrslum í þing­inu hafa stjórn­endur Boeing verið harð­lega gagn­rýndir fyrir að upp­lýsa ekki um galla í vél­un­um, og einnig að slaka á eft­ir­liti með fram­leiðsl­unn­i. 

Kyrr­setn­ingin á Max vél­unum hefur haft mikil áhrif víða um heim, ekki síst á Íslandi. Í Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands sem komu út í nóv­em­ber, segir að sam­dráttur í ferða­þjón­ustu á árinu hafi ekki síst átt sér stað vegna kyrr­setn­ingar á Max vél­un­um, sem hefur leitt til þess að Icelandair hefur þurft að draga úr sæta­fram­boði.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent