Icelandair reiknar ekki með Max vélunum fyrr en í maí

Fyrri tilkynningar höfðu gert ráð fyrir að hinar kyrrsettu vélar frá Boeing gætu komist í loftið í mars á næsta ári. Flugvélarnar hafa verið kyrr­settar um allan heim frá því í lok mars vegna tveggja flugslysa,

Icelandair vél feb 2008
Auglýsing



Icelandair gerir nú ráð fyrir því að Boeing 737 MAX flug­vélar verði komnar í rekstur í maí 2020. Áður hafði verið gert ráð fyrir vél­unum í flug­á­ætlun félags­ins í byrjun mars. Flug­vél­arnar hafa verið kyrr­­settar frá því 28. mars, um allan heim, og því verið ónot­hæfar í far­þega­flug­i. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair en flug­fé­lagið segir að þessi ákvörðun hafi ­lítil áhrif á far­þega og flug­á­ætlun félags­ins á þessu tíma­bili.

Kjarn­inn greindi frá því í gær að Boeing hafi tíma­bundið hætt fram­leiðslu á 737 Max vél­un­um, meðal ann­ars vegna þess að ekki enn liggur fyrir hvenær kyrr­­setn­ing­unni verður aflétt. 

Ástæðan fyrir kyrr­­setn­ing­unni eru flug­­slys í Indónesíu 29. októ­ber í fyrra og í Eþíópíu 13. mars sama ár, en í þeim lét­ust allir um borð, sam­tals 346. Frum­n­ið­­ur­­stöður rann­­sókna í lönd­unum fyrr­­nefndu benda til þess að vél­­arnar hafi verið með gallað MCAS-­­kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi, og því hafi þær tog­­ast til jarðar með fyrr­­nefndu afleið­ing­um.

Auglýsing

Fjöl­margar athuga­­semdir hafa einnig komið fram í rann­­sóknum ann­­arra á Boeing, þar á meðal hjá alrík­­is­lög­regl­unni FBI. Auk þess er Banda­­ríkja­­þing ennþá að rann­saka félagið og hvernig það stóð að upp­­lýs­inga­­gjöf til banda­rískra flug­­­mála­yf­­ir­­valda og eft­ir­lits­að­ila. Í yfir­­heyrslum í þing­inu hafa stjórn­­endur Boeing verið harð­­lega gagn­rýndir fyrir að upp­­lýsa ekki um galla í vél­un­um, og einnig að slaka á eft­ir­liti með fram­­leiðsl­unn­i. 

Kyrr­­setn­ingin á Max vél­unum hefur haft mikil áhrif víða um heim, ekki síst á Íslandi. Í Pen­inga­­málum Seðla­­banka Íslands sem komu út í nóv­­em­ber, segir að sam­­dráttur í ferða­­þjón­­ustu á árinu hafi ekki síst átt sér stað vegna kyrr­­setn­ingar á Max vél­un­um, sem hefur leitt til þess að Icelandair hefur þurft að draga úr sæta­fram­­boði.

Icelandair Group hefur í tvígang gert bráða­birgða­sam­komu­lag við Boeing um bætur fyrir hluta þess tjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna kyrr­setn­ingar MAX vél­anna. Áfram­hald­andi við­ræður við Boeing um að fá heild­ar­tjón vegna kyrr­setn­ing­ar­innar bætt standa enn yfir.

Lítil áhrif á fram­boð

Í til­kynn­ingu Icelandair segir að félagið fylgist áfram með þróun mála varð­andi aflétt­ingu kyrr­setn­ingar MAX vél­anna. Yfir­grips­mikið og vandað ferli sem sé stýrt af alþjóð­legum flug­mála­yf­ir­völdum standi nú yfir með það að mark­miði að tryggja öryggi vél­anna og koma þeim aftur í rekst­ur.

Jafn­framt segir í til­kynn­ingu Icelandair að vegna kyrr­setn­ingar MAX vél­anna verða fleiri Boeing 757 flug­vélar áfram í rekstri hjá félag­inu á næsta ári en upp­haf­lega hafði verið áætl­að. Þá hefur félagið tekið á leigu tvær Boeing 737-800 NG flug­vélar sem koma í rekstur í vor og gerir þar að auki ráð fyrir að bæta þriðju leigu­vél­inni við. 

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. Mynd:Aðsend.„Við teljum ólík­legt að MAX vél­arnar verði komnar aftur í rekstur fyrr en í maí og höfum aðlagað flug­á­ætlun félags­ins að því. Vegna mót­væg­is­að­gerða sem við höfum þegar gripið til kemur þetta til með að hafa lítil áhrifin á fram­boð og far­þega okk­ar. Við settum flug­á­ætl­un­ina fyrir næsta ár upp þannig að áhrif frek­ari kyrr­setn­ingar MAX vél­anna yrðu tak­mörk­uð. Við erum því vel í stakk búin til að takast á við þær áskor­anir sem framundan eru, bæði hvað flota­málin varðar sem og aðra þjón­ustu félags­ins við far­þega,“ segir Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelandair Group.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent