Lífeyrissjóðir lána meira en bankar

Útlán lífeyrissjóða til íbúðarkaupa hafa þrefaldast á fjórum árum. Á sama tíma hefur heildarumfang lána sem bankar og aðrar innlánsstofnanir veita til íbúðarkaupa aukist um tæpan þriðjung.

img_4955_raw_0710130602_10191533305_o.jpg
Auglýsing

Frá því að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins komu af fullum krafti inn á hús­næð­is­lána­mark­að­inn að nýju haustið 2015 hafa útlán þeirra til hús­næð­is­kaupa næstum þre­fald­ast. Þau voru 171,5 millj­arðar króna í októ­ber 2015 en í sama mán­uði fjórum árum síðar voru þau orðin 497,5 millj­arðar króna. 

Hjá inn­láns­stofn­un­um, bönk­unum og spari­sjóð­um, hefur vöxt­ur­inn verið mun hæg­ari. Þar eru lang­fyr­ir­ferða­mestir stóru við­skipta­bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki. 

Frá októ­ber 2015 og fram til sama mán­aðar í ár juk­ust útlán bank­anna til hús­næð­is­kaupa úr 733 millj­örðum króna í 960 millj­arða króna, að teknu til­liti til sölu Arion banka á 50 millj­arða lána­safni til Íbúða­lána­sjóðs í haust. 

Upp­hæð íbúða­lána sem eru í eigu inn­láns­stofn­ana, þ.e. banka og spari­sjóða, er því 31 pró­sent hærri í dag en hún var fyrir fjórum árum síð­an. 

Auglýsing
Aukning þeirra hjá inn­láns­stofn­unum var í krónum talið er 227 millj­arðar króna. Á sama tíma hefur umfang lána líf­eyr­is­sjóða auk­ist um 326 millj­arða króna, eða 99 millj­örðum krónum meira en hjá bönkum og spari­sjóð­um.

Til við­bótar við þessar tvær teg­undir lán­veit­endenda þá lánar Íbúða­lána­sjóður líka hús­næð­is­lán, en ekki á sam­keppn­is­hæfum kjör­u­m. 

Þetta má lesa út úr nýj­ustu hag­tölum Seðla­banka Íslands um útlán inn­láns­stofn­anna og líf­eyr­is­sjóða. 

Óver­tryggð lán sækja á

Kjarn­inn greindi frá því á mið­viku­dag að verð­tryggð lán líf­eyr­is­sjóða og inn­láns­stofn­ana væru í dag mun lægra hlut­fall lána líf­eyr­is­sjóða og fjár­mála­stofn­ana til hús­næð­is­kaupa en þau hafa nokkru sinni áður ver­ið. Sam­kvæmt hag­tölum Seðla­banka Íslands voru 78,7 pró­sent útlána líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sinna verð­tryggð lán í októ­ber síð­ast­liðnum en 62,9 pró­sent útlána inn­láns­stofn­ana.

Til sam­an­burðar hófu líf­eyr­is­sjóð­irnir ekki að bjóða óver­tryggð lán fyrr en í októ­ber 2015 og því hefur breyt­ingin á útlánum þeirra á síð­ustu fjórum árum. Hjá bönk­unum voru 72 pró­sent allra útlána sem voru með veði í íbúð verð­tryggð í októ­ber 2015 en í dag er það hlut­fall komið niður í 62,9 pró­sent. 

Metút­lán í októ­ber

Kjarn­inn greindi frá því 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hefði aldrei lánað sjóðs­fé­lögum sínum meira í hús­næð­is­lán en þeir gerðu í októ­ber síð­ast­liðn­um. Þá námu sjóðs­fé­lags­lán sjóð­anna 13,9 millj­örðum króna og juk­ust um 65 pró­sent á milli mán­aða. Fyrra útlána­met líf­eyr­is­sjóð­anna var sett í júní 2017 þegar þeir lán­uðu rúm­lega ell­efu millj­arða króna til hús­næð­is­kaupa. Því voru útlánin í októ­ber 26 pró­sent hærri en í fyrri met­mán­uði.

Auk þess hafa aldrei verið tekin fleiri lán hjá líf­eyr­is­sjóðum en í tíunda mán­uði árs­ins 2019, þegar þau voru 1.144 tals­ins. Fyrra metið var sett í ágúst 2017 þegar útlánin voru 789 tals­ins. Útlánin í októ­ber voru því 45 pró­sent fleiri en í fyrri met­mán­uði. Allt ofan­greint bendir til þess að tölu­vert líf sé í hús­næð­is­mark­aðnum um þessar mund­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent