Sýn, Síminn og Nova hefja viðræður um samstarf

Viljayfirlýsing á milli þessara stærstu fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækja landsins hefur verið undirrituð.

farsími
Auglýsing

Sýn hf.: Sím­inn hf. og Nova hf. hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um við­ræður um mögu­leika á samnýt­ingu og sam­starfi við upp­bygg­ingu fjar­skipta­inn­viða.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar, en Sýn og Sím­inn eru bæði skráð á mark­að.

„Mark­mið við­ræðna aðila er að kanna mögu­leika á því að vinna að hag­kvæmri nýt­ingu fram­leiðslu­þátta þjóð­fé­lag­ins, draga úr umhverf­is­raski og auka almanna­ör­yggi með því að eiga með sér sam­starf um upp­bygg­ingu fjar­skipta­inn­viða. Með við­ræð­unum vilja aðilar kanna mögu­leika á því að fyr­ir­tækin geti byggt undir mark­mið Alþingis sem koma fram í stefnu Alþingis í fjar­skiptum fyrir árin 2019-2033 um aðgengi að fjar­skipt­um, öryggi fjar­skipta, hag­kvæmni og skil­virkni fjar­skipta sem og að draga úr umhverf­is­á­hrifum fjar­skipta. Mik­il­vægi fjar­skipta í tengslum við nátt­úrú­ham­farir kom ber­sýni­lega í ljós í óveðri sem nýverið gekk yfir landið þar sem fjar­skipta­fyr­ir­tækin geta unnið að því sam­fé­lags­lega mark­miði að tryggja eftir fremsta megni uppi­tíma fjar­skipta þegar mikið liggur við, að því marki sem það er í þeirra hönd­um,“ ­segir í til­kynn­ingu.

Auglýsing

Við­ræð­urnar munu taka mið af fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á fjar­skipta­lögum vegna inn­leið­ingar á reglu­verki vegna sam­starfs Íslands á vett­vangi Evr­ópska Efna­hags­svæð­is­ins en þar er í auknum mæli hvatt til sam­rekst­urs, sam­fjár­fest­inga og samnýt­ingar fjar­skipta­inn­viða, að því er segir í til­kynn­ingu.

„Vilja­yf­ir­lýs­ingin felur ekki í sér fjár­hags­legar skuld­bind­ingar fyrir fyr­ir­tækin og hafa ekki áhrif á rekstur eða afkomu þeirra. Fyr­ir­hug­aðar við­ræð­urnar eru sam­hliða til­kynntar Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og  háðar sam­þykki þess ef þær leiða til sam­komu­lags,“ segir jafn­framt.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent