Öll skilyrði uppfyllt vegna sölu á Icelandair Hotels

Samningur milli Icelandair Group og Arion banka um endurfjármögnun, upp á átta milljarða, hefur nú verið undirritaður.

bogi nils bogason
Auglýsing

Þau skil­yrði sem samið var um vegna sölu á Icelandair Hot­els hafa nú að mestu verið upp­fyllt. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Icelandair Group til kaup­hall­ar. 

Gert er ráð fyrir að gengið verði frá við­skipt­unum í lok febr­úar 2020 en ekki í árs­lok 2019 eins og upp­haf­lega hafði verið stefnt að, en heild­ar­greiðsl­ur til Icelandair Group vegna kaupanna eru um 10,1 millj­arður króna (84 millj­ónir Banda­ríkja­dala).

Þann 13. júlí sl. skrif­aði stjórn Icelandair Group undir samn­ing við dótt­ur­fé­lag Berjaya Land Ber­had um kaup á 75 pró­sent hlut í Icelandair Hot­els og tengdum fast­eign­um. 

Auglýsing

Eitt af skil­yrðum kaupanna var end­ur­fjár­mögnun hót­el­fé­lags­ins. Stjórn Icelanda­ir Hot­els skrif­aði í dag undir samn­ing við Arion Banka um átta millj­arða króna lán (65 millj­ónir Banda­ríkja­dala) þess efn­is. 

Berjaya hefur nú þegar greitt Icelandair Group um 1,8 millj­arð króna (15 millj­ónir Banda­ríkja­dala) eða um það bil 30 pró­sent af kaup­verði félags­ins. 

„Dag­setn­ing loka­greiðslu verður 28. febr­úar 2020, en þessi tveggja mán­aða seinkun kemur til vegna gjald­eyr­is­hafta í Malasíu. Kaup­andi hefur þegar lagt fram stað­fest­ingu á fjár­mögnun eft­ir­stöðva kaup­verðs­ins og sam­þykkt að greiða 6% árs­vexti af þeim. Komi til þess að eft­ir­stöðv­arnar verði ekki greiddar er sam­komu­lag um van­efnda­greiðslu að fjár­hæð um 1,2 millj­arðar króna (10 millj­ónir Banda­ríkja­dala) af hálfu kaup­anda af því sem þegar hefur verið greitt og getur Icelandair Group þá rift kaup­un­um. Heild­ar­greiðslur til Icelandair Group vegna kaupanna eru um 10,1 millj­arður króna (84 millj­ónir Banda­ríkja­dala). Sem fyrr segir hefur 1,8 millj­arður króna (15 millj­ónir Banda­ríkja­dala) þegar verið greidd­ur, um 3,4 millj­arðar króna (29 millj­ón­ir banda­ríkja­dala) verða nú greiddir í kjöl­far end­ur­fjár­mögn­unar Icelandair Hot­els og loka­greiðsla að fjár­hæð um 4,9 millj­arðar (40 millj­ónir Banda­ríkja­dala) verður greidd þann 28. febr­úar 2020,“ segir í til­kynn­ingu frá Icelanda­ir.

Berjaya Land Ber­had er skráð félag í Malasíu og starfar meðal ann­ars í hót­el­rekstri, smá­sölu og fast­eigna­þró­un. Berjaya Land Ber­had og tengd félög eru með um 4.700 starfs­menn og nema árlegar tekjur sam­stæð­unnar 1.76 millj­arði Banda­ríkja­dala. Stofn­andi og stjórn­ar­for­maður Berjaya Group er Vincent Tan.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent