Sósíalistaflokkurinn mælist nægilega stór til að ná fólki inn á þing

Sjálfstæðisflokkur eykur fylgi sitt á milli mánaða en Miðflokkurinn lækkar. Sósíalistar mælast nú með yfir fimm prósent stuðning.

Af þingi Sósíalistaflokksins árið 2018.
Af þingi Sósíalistaflokksins árið 2018.
Auglýsing

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist nú í fyrsta sinn með yfir fimm pró­sent fylgi í könn­unum MMR. Fylgi hans stekkur úr 3,0 pró­sentu­stigum í 5,2 pró­sent milli mán­aða. Sá flokkur sem finnur mest fyrir þess­ari aukn­ingu Sós­í­alista­flokks­ins er Flokkur fólks­ins, sem skreppur saman úr 6,3 pró­sentum í 4,0 pró­sent milli mán­aða. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 20 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun MMR og er sem fyrr stærsti flokkur lands­ins. Fylgi hans eykst úr 18,1 pró­sent í síð­asta mán­uði, sem var lægsta fylgi sem hann hafði mælst með í könn­unum MMR frá upp­hafi mæl­inga. 

Auglýsing
Miðflokkurinn, sem fékk síðan bestu mæl­ingu í sögu sinni í nóv­em­ber, dalar umtals­vert og er nú þriðji stærsti flokkur lands­ins. Fylgi hans fer úr 16,8 pró­sent í 14,3 pró­sent. 

Sam­fylk­ingin bætir lít­il­lega við sig á milli mán­aða og end­ur­heimtir annað sætið á fylg­is­lista stjórn­mála­flokka með 14,4 pró­sent fylgi.

Píratar bæta líka við sig fylgi og mæl­ast nú með 11,8 pró­sent stuðn­ing, aðeins meira en Við­reisn sem mælist með 10,5 pró­sent. Vinstri græn eru á svip­uðum stað og þau voru í nóv­em­ber með 10,3 pró­sent fylgi en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn dalar og myndi fá 8,3 pró­sent ef kosið yrði í dag.

Könnun MMR var fram­kvæmd dag­anna 13. til 19. des­em­ber og svar­fjöldi var 1.014 ein­stak­lingar 18 ára og eldri.  

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar og mælist nú 39 pró­sent. Það er ein­ungis í annað sinn frá því að hún sett­ist að völdum fyrir rúmum tveimur árum síðan sem að stuðn­ingur við hana mælist minni en 40 pró­sent. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent