Sjö prósent tekjuvöxtur hjá Marel í fyrra

Framlegð af rekstri Marels á síðustu þremur mánuðum ársins í fyrra, var lægri en vonir stóðu til. Bjartir tímar eru þó framundan, segir forstjórinn. Markaðsvirði félagsins fór yfir 500 milljarða í dag.

Marel Mynd: Marel
Auglýsing

Sam­kvæmt óend­ur­skoð­uðu bráða­birgða­upp­gjöri Marel fyrir árið 2019 hækka tekjur félags­ins um sjö pró­sent á milli ára og nema 1.284 millj­ónum evra, eða sem nemur um 177 millj­örðum króna.  

Þar af voru tekjur fjórða árs­fjórð­ungs 320 millj­ónir evra, en það er lækkun frá 331 millj­ónum evra á sama tíma­bili árið á und­an. 

EBIT fram­legð fyrir árið 2019 var um 13,5 pró­sent, lítið eitt lægra en árið 2018, sem „skýrist af lágri 10 pró­sent EBIT fram­legð á fjórða árs­fjórð­ungi 2019 (4F18: 14,6%). Þessa tíma­bundnu lækkun á rekstr­ar­nið­ur­stöðu má einkum rekja til óhag­stæðrar sam­setn­ingar milli iðn­aða og vöru­teg­unda, sem og hækk­unar á kostn­aði til að mæta breyt­ingum á eft­ir­spurn eftir heims­hlut­u­m,“ segir orð­rétt í til­kynn­ingu frá Marel til kaup­hallar.

Auglýsing

„Pant­anir í árs­fjórð­ungnum námu 303 millj­ónum evra (4F18: 296m). Frjálst sjóð­streymi í fjórð­ungnum var sterkt eða 53 millj­ónir evra (4F18: 41m), en auknar inn­borg­anir á pant­anir í lok fjórð­ungs­ins gefa til kynna betri horfur á mark­aði og aukna eft­ir­spurn frá við­skipta­vinum félags­ins,“ segir enn­frem­ur.

Mark­mið félags­ins um tólf pró­sent árlegan með­al­vöxt tekna yfir tíma­bilið 2017-2026 er óbreytt, segir í til­kynn­ing­unni, en Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Mar­el, segir að fyr­ir­tækið hafi kom­ist í gegnum nokkuð erfitt tíma­bil, sem ein­kennd­ist af við­skipta­hindr­unum og umróti á mörk­uð­um, en að bjart­ari tímar séu nú framund­an, hvað það varð­ar. „Við birtum þessa til­kynn­ingu um meg­in­nið­ur­stöður árs­ins nú í ljósi þess að rekstr­ar­nið­ur­stöður sýna í kringum 10% EBIT fram­legð í fjórða árs­fjórð­ungi, sem er undir vænt­ing­um. Þetta þýðir að við lokum árinu með um 13,5% EBIT fram­legð, en hún hefur verið um 14-15% síð­ustu ár. Á sama tíma náðum við að skila 7% tekju­vexti og EBIT var svipað á milli ára. Í sam­starfi við við­skipta­vini okkar höfum við kom­ist í gegnum erfitt tíma­bil þar sem mark­að­að­stæður lit­uð­ust af við­skipta­hindr­unum og umróti á heims­mörk­uð­um. Við horfum nú fram á bjart­ari tíma og merkjum aukna eft­ir­spurn og vilja til fjár­fest­inga á mark­aði. Horfur fyrir pant­anir eru góðar og með aðgerðum til að straum­línu­laga rekstur félags­ins má búast við auknum tekjum og bættri arð­semi jafnt og þétt eftir því sem líður á árið,“ segir Árni Odd­ur.

Mark­aðsvirði félags­ins hækk­aði um 1,7 pró­sent í dag og nemur nú um 500 millj­örðum króna, en félagið er skráð á markað á Íslandi og í kaup­höll Euro­next í Amster­dam í Hollandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent