Ríkið greiðir út bætur vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins

Bætur hafa verið greiddar til þeirra sem sýknaðir voru í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Greiðslur ríkisins nema 815 milljónum króna með lögmannskostnaði.

guðmundar og geirfinnsmálið
Auglýsing

Albert Klahn Skafta­son, Guð­jón Skarp­héð­ins­son og Krist­ján Viðar Júl­í­us­son fengu í gær greiddar bætur úr rík­is­sjóði á grund­velli laga um bætur vegna sýknu­dóms Hæsta­réttar í Guð­mund­ar- og Geir­finns­málum sem kveð­inn var upp í fyrra. Einnig voru greiddar bætur til maka og barna Tryggva Rún­ars Leifs­sonar og Sæv­ars Mar­inós Ciesi­elski.

Frétta­blaðið greinir frá í dag.

Sam­kvæmt blað­inu eru bóta­fjár­hæðir sem hér seg­ir:

  • Albert Klahn Skafta­son fær 15 millj­ónir
  • Guð­jón Skarp­héð­ins­son fær 145 millj­ónir
  • Krist­ján Viðar Júl­í­us­son fær 204 millj­ónir
  • Aðstand­endur Tryggva Rún­ars Leifs­sonar fá alls 171 milljón
  • Aðstand­endur Sæv­ars Mar­inós Ciesi­elski fá alls 239 millj­ónir

Auk bót­anna var 41 milljón greidd í lög­manns­kostnað og nemur greiðsla rík­is­ins því 815 millj­ónum króna.



Auglýsing

­Sam­kvæmt frétt­inni eru bæt­urnar skatt­frjálsar og skerða ekki bætur almanna­trygg­inga eða sam­bæri­legar greiðsl­ur.

„Eins og fram kemur í lög­unum kemur greiðsla bóta á grund­velli þeirra ekki í veg fyrir að bóta­þegar geti höfðað sér­stakt bóta­mál fyrir dóm­stólum til heimt­ingar frek­ari bóta. Enn sem komið er hefur Guð­jón Skarp­héð­ins­son einn máls­að­ila stefnt rík­inu til heimt­ingar bóta,“ segir í Frétta­blað­in­u. 

Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra lagði fram í rík­­is­­stjórn í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins frum­varp til laga um sann­girn­is­bætur í kjöl­far sýkn­u­­dóms Hæsta­réttar í Guð­­mund­­ar- og Geir­finns­­mál­inu. Í sept­em­ber árið áður höfðu allir sak­­born­ingar í mál­inu verið sýkn­aðir af öllum ákæru­lið­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent