Senda út fjölmargar umsagnarbeiðnir vegna rannsóknar á fjárfestingarleið

Á meðal þeirra sem beðnir hafa verið um álit á því hvort að skipa eigi rannsóknarnefnd af Alþingi til að rannsaka fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands eru Seðlabankinn sjálfur, Persónuvernd, Skattrannsóknarstjóri og Samtök fjármálafyrirtækja.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, er fyrsti flutningsmaður tillögunar.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, er fyrsti flutningsmaður tillögunar.
Auglýsing

Alþingi sendi í lok síð­ustu viku út alls 23 umsagn­ar­beiðnir vegna þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Til­lagan var lögð fram af öllum þing­mönnum Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar í nóv­em­ber síð­ast­liðnum og sam­kvæmt henni á að verða skipuð þriggja manna rann­sókn­ar­nefnd af Alþingi til að rann­saka hina fjár­fest­ing­ar­leið­ina. 

Á meðal þeirra sem boðið hefur verið að skila inn umsögn eru Seðla­banki Íslands, Banka­sýsla rík­is­ins, Per­sónu­vernd, Alþýðu­sam­band Íslands, Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða, Rík­is­lög­reglu­stjóri, Rík­is­sak­sókn­ari, Skatt­rann­sókn­ar­stjóri og Sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja. 

Frestur til að skila inn umsögnum er til 20. febr­úar næst­kom­andi.

Á að ljúka störfum fyrir 1. októ­ber

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er farið fram á að rann­sókn­ar­nefndin geri grein fyrir því hvaðan fjár­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni kom, hvaða ein­stak­lingar eða félög voru skráð fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf. 

Auglýsing
Þar er einnig kallað eftir að upp­lýs­ingar verði dregnar fram um hvort rík­is­sjóður hafi orðið af skatt­tekjum vegna leið­ar­innar og þá hversu mikið það tap var, hvort að sam­þykkt til­boð í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar kunni í ein­hverjum til­vikum að hafa brotið gegn skil­málum hennar og hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskatt­lögðum eignum Íslend­inga á aflands­svæðum aftur til lands­ins, til að stunda pen­inga­þvætti eða mis­notuð með öðrum hætti.

Nefnd­in, verði til­lagan sam­þykkt, á að skila nið­ur­stöðum sínum í skýrslu­formi svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 1. októ­ber 2020. Fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar var Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­maður Pírata. Alls eru 17 þing­menn skrif­aðir fyrir henni.

Ekki hægt að úti­loka svik

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni sagði að fjár­fest­ing­ar­leiðin hafi verið gagn­rýnd af ýmsum ástæð­um, en telja verði sér­stak­lega mik­il­vægt í ljósi umræðu um aflandseignir og skattaund­an­skot á síð­ustu miss­erum að leit­ast verði við að rann­saka og fjalla um hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin hafi stuðlað að því að fjár­magn vegna skattaund­an­skota, sem geymt var í skjóli á aflandseyj­um, hafi verið fært til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina með afslætt­i. 

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­son­ar, þing­manns Pírata, á Alþingi hafi til að mynda komið fram að ekki væri hægt að úti­loka að í ein­hverjum til­vikum hafi ekki verið farið í einu og öllu að ákvæðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar.

Þar er enn fremur vísað í skýrslu sem Seðla­banki Íslands lét sjálfur vinna um fram­kvæmd fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar og ann­arra gjald­eyr­is­út­boða á árunum 2011 og 2015, og birt var í ágúst síð­ast­liðnum og sagt að í þeirri skýrslu kunni ein­hver svör að liggja við þeim spurn­ingum sem skipun rann­sókn­ar­nefndar á að svara. „Í ljósi þeirra gríð­ar­legu miklu fjár­muna og áhrifa sem fjár­fest­inga­leiðin hefur haft á íslenskt efna­hags­líf er að mati flutn­ings­manna rétt­ast að óháður aðili fjalli um fram­kvæmd útboð­anna frekar en sá aðili sem rann­sóknin mun snúa að.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent