Efling í verkfall á morgun

Fundur samninganefnda Eflingar og Reykjavíkurborgar hjá ríkissáttasemjara bar ekki árangur í morgun og því munu félagsmenn Eflingar fara í verkfall á morgun.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Auglýsing

Fundur samn­inga­nefnda Efl­ingar og Reykja­vík­ur­borgar hjá rík­is­sátta­semj­ara bar ekki árangur í morgun og því ljóst að rúm­lega 1.800 félags­menn Efl­ingar sem starfa hjá borg­inni fara í verk­fall á hádegi á morg­un. Næsti fundur í kjara­deil­unni er boð­aður klukkan þrjú á mið­viku­dag­inn. RÚV greinir frá

Verk­falls­að­gerð­irnar hefj­ast klukkan 12:30 á hádegi og standa til mið­nætt­is. Verk­­fallið mun hafa mest áhrif á leik­­skóla- og vel­­ferð­­ar­­þjón­­ustu á vegum Reykja­vík­­­ur­­borgar auk sorp­­hirðu, vetr­­ar­­þjón­­ustu og umhirðu borg­­ar­lands­ins.

Starfs­fólk Efl­ingar telur um 1.850 af um 9.000 starfs­mönnum borg­ar­inn­ar. Efl­ing­ar­fólk starfar í fjöl­breyttum störfum á 129 starfs­stöðum hjá Reykja­vík­ur­borg. Um 1.000 starfa á skóla- og frí­stunda­sviði, þar af mik­ill meiri­hluti í leik­skól­un­um. Þá starfa um 700 úr Efl­ingu við vel­ferð­ar­þjón­ustu borg­ar­inn­ar.

Auglýsing

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Efl­ing­ar, segir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að eng­inn árangur hafi verið á fund­inum í morg­un. „Það kom ekk­ert fram af hálfu borg­ar­innar sem að býr til neinn við­ræðu­grund­völl.“

Þá kom fram á kynn­ingu Efl­ingar í síð­ustu viku að fram­­kvæmd launa­hækk­­unar næmi um 22 til 52 þús­und krónur á mán­uði fyrir laun undir 445 þús­und á mán­uði. Launa­hækk­­unin yrði fram­­kvæmt í tveimur áföng­­um. Í fyrsta lagi þann 1. sept­­em­ber næst­kom­andi þar sem 56 pró­­sent af kostn­að­­ar­á­hrifum myndu koma fram og í öðru lagi þann 1. mars á næsta ári þar sem 100 pró­­sent af kostn­að­­ar­á­hrifum myndu koma fram.

Áætluð með­­al­tals­hækkun á mann er reiknuð út frá fjölda í hverjum launa­­flokki, starfs­hlut­­falli og álögum vegna vakta­vinnu og yfir­­vinnu. Gert er ráð fyrir 24 pró­­sent við­­bót vegna launa­­kostn­aðar og 1.850 starfs­­mönn­­um.

Bar­áttufundur í Iðnó

Efl­ing hefur efnt til bar­áttufundar í Iðnó. Starfs­menn leggja niður störf, eins og áður seg­ir, klukkan 12:30 og safn­ast saman í Iðnó þar sem boðið verður upp á dag­skrá, kaffi­veit­ingar og skilta­gerð. Húsið opnar klukkan 12:30 og hefst dag­skrá klukkan 13.00, að því er kemur fram í til­kynn­ingu frá Efl­ingu sem send var út í dag. 

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, mun ávarpa gesti, Bubbi Morthens taka lagið og félags­menn í Efl­ingu þar á eftir taka til máls.

Að lokun verður kröfu­ganga en í Iðnó verður opið hús til klukkan 16:00.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent