Íslensk stjórnvöld hafa ekki boðið namibískum stjórnvöldum aðstoð

Það er mat íslenskra stjórnvalda að grípa ekki að sinni til sérstakra ráðstafana til að sporna við mögulegum orðsporshnekki landsins vegna Samherjamálsins. Þau hafa ekki boðið namibískum stjórnvöldum aðstoð sína, og engar slíkar beiðnir hafa borist.

Hluti ríkisstjórnar Íslands.
Hluti ríkisstjórnar Íslands.
Auglýsing

Hvorki utan­rík­is­ráðu­neytið né atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hafa fengið beiðnir um sér­staka aðstoð frá namibískum stjórn­völdum í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins, og slík aðstoð hefur ekki verið boð­in. Þetta kemur fram í svari þeirra við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið. 

Þann 19. nóv­em­ber 2019 kynnti rík­is­stjórn Íslands aðgerð­ar­á­ætlun til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi. Þetta var gert í kjöl­far opin­ber­ana á málum tengdum Sam­herja og athæfi þess fyr­ir­tækis í Namib­íu, sem sner­ust meðal ann­ars um meintar mútu­greiðslur fyrir aðgengi að fisk­veiði­kvóta. 

Aðgerð­ar­á­ætl­unin var birt á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Einn lið­ur­inn í henni bar nafnið „við­brögð erlend­is“ og undir honum kom fram að rík­is­stjórn hefði und­ir­búið við­brögð vegna hugs­an­legs orð­spors­hnekk­is.

Auglýsing
Síðustu daga hafa fjöl­miðlar í Namibíu greint frá því að tveir af þremur tog­urum sem Sam­herji hefur verið með í Namibíu hafi verið siglt ann­að, og yfir 200 skip­verjar á þeim skildir eftir í óvissu um fram­tíð sína. Þriðji og síð­asti tog­ar­inn hefur verið kyrr­settir í Namibíu eftir að hann varð upp­vís að ólög­legum veið­um, sem skip­stjóri hans hefur ját­að, en fréttir þar­lendra frétta­miðla benda til þess að Sam­herji sé að reyna allt sem í sínu valdi stendur til að koma þeim tog­ara einnig burt. 

Það varð mögu­legt í gær þegar kyrr­setn­ingu tog­ar­ans, Heina­ste, var aflétt sam­hliða því að Sam­herji greiddi sekt vegna brota skip­stjór­ans. 

Hafa ekki þurft að bregð­ast við mögu­legum orð­spors­hnekki

Þar sem Sam­herji er stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Íslands og meint brot varða atferli þess í alþjóða­við­skipt­um, beindi Kjarn­inn fyr­ir­spurnum til við­eig­andi ráðu­neyta um hvort að íslensk stjórn­völd hefðu gripið til ein­hverra aðgerða vegna þessa til að vernda orð­spor Íslands, líkt og talað var um í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni í nóv­em­ber. 

Í svörum sem bár­ust í gær sagði að allt frá því að Sam­herj­a­málið kom upp hafi íslensk stjórn­völd, með aðstoð Íslands­stofu og almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins BCW, fylgst grannt með erlendri fjöl­miðlaum­fjöllun og umræðum á sam­fé­lags­miðlum sem teng­ist því. „Um­fjöll­unin var tölu­verð fyrstu dag­ana og beind­ist þá fyrst og fremst að Namibíu og þætti þar­lendra ráða­manna í mál­inu en svo dró jafnt og þétt úr henni. Hvorki utan­rík­is­ráðu­neytið né sendi­skrif­stofur hafa fengið telj­andi fyr­ir­spurnir eða athuga­semdir vegna máls­ins og Íslands­stofa ekki held­ur. Í ljósi þessa er það mat stjórn­valda að grípa ekki að sinni til sér­stakra ráð­staf­ana til að sporna við mögu­legum orð­spors­hnekki. Verði breyt­ing á verður þetta mat end­ur­skoðað enda voru við­brögð und­ir­búin um leið og málið kom upp.“

Aðspurð hvort að íslensk stjórn­völd hafi boðið namibískum stjórn­völdum ein­hvers­konar aðstoð vegna máls­ins var svarið nei. Hvorki utan­rík­is­ráðu­neyt­inu né atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu hefði borist beiðnir um sér­staka aðstoð frá namibískum stjórn­völdum vegna máls­ins og hún því ekki verið boð­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent