Lán til sjávarútvegsins umfangsmest í fyrirtækjalánasafni Landsbankans

Útlán til sjávarútvegsfyrirtækja eru langsamlega stærsti liðurinn í útlánum til fyrirtækja hjá Landsbankanum. Þau námu rúmlega 150 milljörðum í lok árs í fyrra.

Landsbankinn
Auglýsing

Sé horft til útlána til fyr­ir­tækja hjá Lands­bank­an­um, stærsta banka lands­ins sem ríkið á að mestu (98,2 pró­sent), þá er sjáv­ar­út­vegur lang­sam­lega umfangs­mestur þegar geirar atvinnu­lífs­ins eru skoð­að­ir. 

Sam­tals námu útlán til sjáv­ar­út­vegs­ins rúm­lega 151,3 millj­örðum króna í lok árs, og juk­ust þau um rúm­lega fjóra millj­arða frá stöðu mála í lok árs 2018. 

Þetta kemur fram í skýr­ingum sam­stæðu­reikn­ings, þar sem fjallað um áhættu­grunn í efna­hags­reikn­ingi bank­ans. 

Auglýsing

Fast­eigna­fé­lög eru einnig stór í útlánum hjá bank­an­um, með 139 millj­arða, og þjón­usta er með 137 millj­arða króna. 

Útlánaáhætta Landsbankans, eftir geirum.

Sé horft til áhættu bank­ans utan efna­hags­reikn­ings, það er hámarks­greiðslur sem sam­stæðan gæti þurft að inna af hendi vegna ábyrgða, lána­skuld­bind­inga og óádreg­inna yfir­drátt­ar­heim­ilda og kredit­korta­heim­ilda, þá nemur hún 167,9 millj­örðum í til­viki sjáv­ar­út­vegs­ins. 

Þegar staða mála í bygg­ing­ar­starf­semi er skoðuð er áhætta utan efna­hags­reikn­ings um 53 millj­arðar króna, og þar af eru ónýttar láns­heim­ildir 46 millj­arð­ar, en heildar umfang útlána Lands­bank­ans til bygg­ing­ar­starf­semi nam rúm­lega 98 millj­örðum króna í lok árs­ins. 

Eins og greint var frá í dag, þegar upp­gjör Lands­bank­ans var birt, hagn­að­ist Lands­bank­inn um 18,2 millj­arða króna í fyrra. Heild­ar­eignir bank­ans - þar sem útlán eru stærsti þátt­ur­inn - námu 1.426 millj­örðum króna í lok árs, og var eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans 25,8 pró­sent, og eigið féð 247,7 millj­arðar króna.

Ein­stak­lings­við­skipti vega þyngst í grunn­rekstri Lands­bank­ans, eins og sést á útlána­tölum bank­ans. Sam­tals námu útlán til ein­stak­linga 468 millj­örðum króna í lok árs­ins.

Sam­an­lagðar arð­greiðslur Lands­bank­ans til íslenska rík­is­ins, nema um 150 millj­örðum króna, frá árinu 2013 og með arð­greiðslu vegna árs­ins 2019, sem er áætluð að verði 9,5 millj­arð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent