Landsbankinn hagnaðist um 18,2 milljarða í fyrra

Arðgreiðsla til ríkisins, nemur um helmingi af hagnaði ársins í fyrra.

Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans
Auglýsing

Hagn­aður Lands­bank­ans á árinu 2019 nam 18,2 millj­örðum króna eftir skatta, sam­an­borið við 19,3 millj­arða króna á árinu 2018. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum vegna árs­upp­gjörs bank­ans.

Arð­semi eigin fjár eftir skatta var 7,5 pró­sent á árinu 2019, sam­an­borið við 8,2 pró­sent arð­semi árið áður. Sé horft til kerf­is­lægt mik­il­vægu bank­anna þriggja, Íslands­banka, Arion banka og Lands­bank­ans, þá er arð­semin lang­sam­lega mest hjá Lands­bank­an­um, en líkt og í til­felli Íslands­banka er íslenska ríkið eig­andi bank­ans.

Auglýsing

Hreinar vaxta­tekj­ur námu 39,7 millj­örðum króna árið 2019 sam­an­borið við 40,8 millj­arða króna árið á und­an. Eigið fé Lands­bank­ans nam 247,7 millj­örðum króna í lok árs.

Efnahagur Landsbankans, helstu stærðir. Kostnaðarhlutfall Landsbankans var lægra í fyrra, en árið á undan. Kostnaðarhlutfall sýnir hlutfall rekstrarkostnaðar, við rekstrartekjur.

Lilja Björk Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir í til­kynn­ingu að skatt­heimta á stærri fjár­mála­fyr­ir­tæki skekki sam­keppn­is­stöð­una. Hún segir að bank­inn muni áfram leita leiða til að auka hag­kvæmni í rekstri, líkt og hann hefur gert á und­an­förnum árum.

„Starfs­fólk bank­ans hefur nýtt vel þau tæki­færi sem hafa gef­ist til að efla við­skipta­sam­bönd og á árinu 2019 buðum við fjöl­marga nýja við­skipta­vini vel­komna. Þetta á jafnt við um fyr­ir­tæki sem ein­stak­linga. Við erum stolt af því að hafa stutt við yfir eitt þús­und fjöl­skyldur og ein­stak­linga sem voru að stíga sín fyrstu skref á hús­næð­is­mark­að­inum en bank­inn var með 38% hlut­deild í íbúða­lánum til fyrstu kaupa á árinu. Lands­bank­inn veitir sam­keppn­is­hæf kjör þar sem því verður við komið en það er öllum ljóst að erfitt er að keppa um kjör við aðila sem búa við lægri álögur en bank­inn. Skatt­heimta á stærri fjár­mála­fyr­ir­tæki, sem jafn­framt er mun meiri en í nágranna­lönd­un­um, skekkir sam­keppn­is­stöð­una veru­lega og kemur niður á kjörum til við­skipta­vina. Lands­bank­inn mun áfram vinna að því að lækka rekstr­ar­kostnað en stærstu tæki­færin til þess liggja í áfram­hald­andi stöðlun og ein­földun á sam­eiginlegum innviðum fjár­mála­kerf­is­ins,“ segir Lilja Björk.

Á árinu 2019 greiddi Lands­bank­inn 9,9 millj­arða króna í arð til hlut­hafa en alls nema arð­greiðslur bank­ans um 142 millj­örð­um króna frá árinu 2013. 

Eig­in­fjár­hlut­fall Lands­bank­ans í árs­lok 2019 var 25,8 pró­sent, sam­an­borið við 24,9 pró­sent í árs­lok 2018. Fjár­mála­eft­ir­litið gerir 20,5 pró­sent heild­ar­kröfu um eig­in­fjár­grunn Lands­bank­ans. 

Banka­ráð mun leggja til við aðal­fund þann 27. mars 2020 að greiddur verði arður til hlut­hafa vegna árs­ins 2019 sem nemur 0,40 krónu á hlut, eða sam­tals 9,5 millj­örðum króna. 

Arð­greiðslan nemur um 52 pró­sent af hagn­aði árs­ins 2019.

Heild­ar­eignir bank­ans námu um 1.426 millj­örðum króna í lok árs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent