Þriðja COVID-19 tilfellið staðfest hér á landi

Þau tilfelli sem greind hafa verið í dag tengjast bæði flugferðum á vegum Icelandair til landsins í gær. Báðir einstaklingarnir höfðu verið á skíðum á Ítalíu.

landspitalinn_16034614341_o.jpg
Auglýsing

Þrjú til­felli af veirunni SAR­S-CoV-2 sem veldur COVID-19 sjúk­dómi verið stað­fest hér á landi. Þriðja til­fellið var stað­fest fyrr í kvöld á veiru- og sýkla­fræði­deild Land­spít­ala. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Sam­hæf­ing­ar­stöð­inni í kvöld. 

Um er að ræða konu á fimm­tugs­aldri. Þau til­felli sem greind hafa verið í dag tengj­ast bæði flug­ferðum á vegum Icelandair til lands­ins í gær; ann­ars vegar flugi sem kom frá Veróna og hins vegar flugi sem kom frá Munchen. Báðir ein­stak­ling­arnir höfðu verið á skíðum á Ítal­íu. Líðan þeirra sem greindust með veiruna í dag er góð, en þau sýna dæmi­gerð ein­kenni sjúk­dóms­ins (hósti, hiti og bein­verkir). Allir þrír ein­stak­lingar sem greindir hafa verið með veiruna eru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Um 300 manns eru nú í sótt­kví á land­inu, sam­kvæmt til­kynn­ing­unn­i. 

Eins og greint var frá fyrr í dag var öllum þeim sem voru um borð í flug­vél­inni frá Veróna ráð­lagt að fara í sótt­kví. Haft verður sam­band við hóp­inn í gegnum tölvu­póst og með sím­tali frá heil­brigð­is­starfs­manni. Um er að ræða 180 ein­stak­linga, en til að sinna þessu verki var hópur hjúkr­un­ar­fræð­inga feng­inn til lið­sinnis við smit­rann­sókn­arteymi almanna­varna og sótt­varna­lækn­is.

Auglýsing

­Sótt­varna­læknir hef­ur, í sam­ráð við almanna­varnir og borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, skil­greint gjör­vallt Ítalíu sem hættu­svæði. Þýska­land er hins vegar ekki skil­greint hættu­svæði. Því er ekki talin þörf á sótt­kví fyrir þá far­þega sem komu frá Munchen með Icelandair í gær nema þá sem komu frá Ítal­íu. Hins vegar mun smit­rann­sóknateymi almanna­varna og sótt­varna­læknis hafa sam­band við þá far­þega sem útsettir voru fyrir smiti í flug­vél­inni og upp­lýsa þá um helstu stað­reyndir í tengslum við COVID-19, per­sónu­legt hrein­læti og síma 1700, sam­kvæmt Sam­hæf­ing­ar­stöð­inn­i. 

Þá kemur fram í til­kynn­ing­unni að stjórn­endur Icelandair hafi fundað með sótt­varna­lækni og full­trúum almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í kvöld vegna máls­ins. „Á meðal þess sem var ákveðið á þeim fundi var að áhafnir Icelandair munu dreifa upp­lýs­inga­miðum til allra þeirra sem ferð­ast munu með flug­fé­lag­inu til Íslands.“

Sótt­varna­læknir minnir á að ein­stak­ling­ar, með búsetu á Íslandi, sem hafa verið á skil­greindum áhættu­svæð­um, það er Ítal­íu, Kína, Suður Kóreu og Íran og snúa heim eru hvattir til að halda sig heima í 14 daga eftir að þeir hafa yfir­gefið skil­greind áhættu­svæði, sjá leið­bein­ingar til ein­stak­linga í sótt­kví. Ef þeir fá ein­kenni frá önd­un­ar­færum innan 14 daga, sér­stak­lega með hita, skulu þeir hafa sam­band við Lækna­vakt­ina í síma 1700 eða sína heilsu­gæslu sím­leiðis en ekki mæta óboð­aðir á sjúk­linga­mót­tök­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent