Fáum kemur lengur á óvart að fá símtal frá smitrakningateyminu

Í smitrakningateymi sóttvarnalæknis og ríkislögreglustjóra eru meðal annars lögreglumenn sem hafa reynslu af því að hafa upp á fólki og rekja ferðir þess. „Það er alveg dásamlegt að fylgjast með samvinnunni,“ segir yfirmaður teymisins.

Ævar Pálmi Pálmason er yfirmaður smitrakningateymis almannavarna.
Ævar Pálmi Pálmason er yfirmaður smitrakningateymis almannavarna.
Auglýsing

„Það óraði engan fyrir því hvað þetta verk­efni yrði stórt,“ ­segir Ævar Pálmi Pálma­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn og yfir­mað­ur­ smitrakn­ingateymis almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra og sótt­varna­lækn­is­. Hlut­verk hans er að sam­eina krafta, reynslu og þekk­ingu ólíkra hópa en lög­regla- og heil­brigð­is­yf­ir­völd vinna í sam­ein­ingu að smitrakn­ingu hér landi vegna COVID-19. „Lög­reglan hefur reynslu af því að hafa uppi á fólki, rekja ferð­ir þeirra og finna tengsl. Heil­brigð­is­starfs­fólk hefur reynslu og þekk­ingu á því að draga fram upp­lýs­ingar og að tala við fólk en þetta snýst nátt­úr­lega fyrst og fremst um sam­skipt­i.“

Ævar lýsti því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að hlut­irnir hafi gerst hratt eftir að ákveðið var að setja teymið sam­an. Aðeins hafi liðið tveir tímar frá því að hann fékk að vita að hann væri í teym­inu að þar til það var kallað út í fyrsta sinn.

Í teym­inu eru nú sextán heil­brigð­is­starfs­menn og 22 frá­ lög­regl­unni. Von er á fleira fólki inn í teymið. „Þetta hefur vaxið gríð­ar­lega hratt og vex á hverjum deg­i,“ sagði Ævar. „Þetta hefur allt tekið breyt­ing­um, oft á dag jafn­vel. Við erum alltaf að reyna að þróa og bæta verk­lag­ið.“

Auglýsing

Ævar sagð­ist vera spurður að því á hverjum degi hversu leng­i teymið muni starfa. „Ég hef ekki hug­mynd um það. Við sjáum ekki fyrir end­ann á þessu eins og er. Þetta er gríð­ar­leg áskor­un, senni­lega ein sú stærsta sem ég hef tek­ist á við. En jafn­framt eru það for­rétt­indi að fá að vinna með fólk­inu í teym­inu. Það er alveg dásam­legt að fylgj­ast með sam­vinn­unni. Þetta eru ólíkir hópar ­sem drag­ast að og fara að vinna sam­an.“

Hann sagði að teymið hefði rek­ist á margar hindr­anir við ­störf sín, „en við höfum yfir­stigið þær allar eða farið fram hjá þeim“.

Smitrakn­ing­arteymið á í góðri sam­vinnu við marga aðila úti í sam­fé­lag­inu og hrós­aði hann sér­stak­lega Icelandair og Air­port Associ­ates í því ­sam­bandi. „En með hags­muni fólks að leið­ar­ljósi verðum við að ná sem fyrst til­ þess.“

Smitrakn­ing­arteymið hefur meðal ann­ars það hlut­verk að hringja í fólk sem hefur mögu­lega átt náið sam­neyti við smit­aða ein­stak­linga. Er fólki í því sam­tali til­kynnt að það þurfi að fara í sótt­kví. Ævar segir að það komi fólki ekki lengur á óvart að fá sím­töl frá teym­inu líkt og það gerði í fyrstu vik­unni. Í þessum sím­tölum er sagt: Þú hefur verið í nánu sam­bandi við ein­hvern sem er smit­að­ur, ert þar af leið­andi útsettur fyrir smiti og þarft að fara í sótt­kví. „Núna um helg­ina kom fólki þetta minna á óvart og átti jafn­vel von á þessu sím­tal­i,“ sagði Ævar.

Hann sagð­ist virki­lega stoltur af fólk­inu í teym­inu, „þetta er fólk sem henti öllum öðrum verk­efnum frá sér. Flestir voru í dag­vinnu en þurftu að breyta um vinnu­um­hverfi og vinnu­tíma og er nú komið í vakta­vinn­u. Þess vegna lenda hefð­bundin verk­efni þeirra á vinnu­fé­lögum og fjöl­skyld­um“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent