Dagur með Barack Obama á fjarfundi

Fjallað var um COVID-19 á fundi borgarstjóra víðs vegar að úr heiminum sem haldinn var í gær. Dagur B. Eggertsson var á fundinum.

Dagur B. Eggertsson og Obama
Dagur B. Eggertsson og Obama
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borgar tók þátt í fundi borg­ar­stjóra víðs vegar að úr heim­inum í gær þar sem fjallað var um COVID-19. Frá þessu greinir hann á Face­book-­síðu sinni í dag.

Á fjar­fund­inum var fjallað um það risa­stóra verk­efni sem framundan er: Að aflétta þeim tak­mörk­unum sem öll borg­ar­sam­fé­lög hafa meira eða minna þurft að grípa til „og við köllum einu nafni „sam­komu­bann“ hér land­i,“ skrifar hann.

Fram kemur í færslu Dags að fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, Barack Obama, hafi verið á fund­in­um, ásamt fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra New York-­borgar og Tom Frieden, fyrr­ver­andi yfir­manni Center of Dise­ase Control í Banda­ríkj­un­um, „sem hefur af mörgum verið þakkað fyrir árang­urs­ríka glímu við E-bólu og SAR­S-veiruna alþjóð­lega“. Dagur við­ur­kennir að það hafi fylgt því sér­stök til­finn­ing að vera með þessum herra­mönnum á fundi.

Auglýsing

„Ég treysti mér nán­ast til að full­yrða að allar borg­irnar á fund­inum í gær hefðu sann­ar­lega óskað þess að hafa und­ir­búið sig jafn snemma og við fengum tæki­færi til,“ skrifar Dag­ur.

Þá kemur enn fremur fram í færsl­unni að í lok jan­úar hafi almanna­varn­ar­nefnd höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fengið Þórólf Guðna­son sótt­varna­lækni til þeirra til að fara yfir hvað væri hugs­an­lega framund­an. „Til­efnið var að við vorum komin á óvissu­stig almanna­varna vegna yfir­vof­andi heims­far­ald­urs. Þórólfur hitti neyð­ar­stjórn borg­ar­innar strax sama dag og við hóf­umst handa við að upp­færa allar við­bragðs­á­ætl­anir og búa okkur undir það sem gæti verið í vænd­um. Fyrir til­viljun höfðum við skipu­lagt æfingu - sem átti að vera rútu­slys með meiðslum á börnum - en snérum henni á punkt­inum í það að und­ir­búa starf­semi borg­ar­innar fyrir veiruna.“

Það séu ekki ein­ungis sveit­ar­fé­lögin sem hafi fengið tíma til að und­ir­búa sig heldur líka heil­brigð­is­kerf­ið, við­bragð­að­ilar og allir sem hafi þurft að vera við­búnir í verk­efnum sem þess­um.

Sumt mun þurfa að breyt­ast – jafn­vel var­an­lega

„Mestu skipti þó að kerfi smit­grein­ing­ar, rakn­ingar á smit­um, sótt­kví og ein­angrun fór strax af stað. Og öllu var miðlar opið og reglu­lega til almenn­ings. Þetta er lyk­ill­inn að árangri og þetta er lyk­ill­inn að öllum frek­ari skref­um. Borgir, lönd og heim­inn allan dreymir um að hafa þá yfir­sýn og yfir­vegun í öllum aðgerðum sem við höfum búið að hér á Íslandi frá fyrsta degi.

Það mun líka reyn­ast okkur ómet­an­legt í að feta leið­ina fram á við, þar sem við opnum í áföngum fyrir stærri og stærri hluta starf­semi og sam­fé­lags­ins. Sumt mun án efa þurfa að breytast, jafn­vel var­an­lega í því hvernig við útfærum og hugsum hlut­ina. En við skulum gera þetta allt á sama hátt og við bjuggum okkur undir far­ald­ur­inn: með virku sam­tali og for­sjálni, öflun og rýni gagna, með yfir­vegun og fag­mennsku að leið­ar­ljósi, kjarki til að taka ákvarð­anir en líka var­færni í ljósi óvissu. Við skulum ekki skella hlutum fram að óat­hug­uðu máli og gætum þess áfram að skila­boð stjórn­valda og sótt­varna séu sam­ræmd, rök­studd og skýr. Þá mun okkur áfram ganga eins og best verður á kosið í þessum erf­iðu verk­efn­um,“ skrifar Dag­ur.

Stóra hrós dags­ins fer að mati borg­ar­stjór­ans til Ölmu Möller land­lækn­is, Þór­ólfs og Víðis Reyn­is­sonar yfir­lög­reglu­þjóns og þeim „ótrú­lega stóra og öfl­uga hópi fag­fólks sem að baki þeim stend­ur. Þið eruð hreint og beint á heims­mæli­kvarða!“

Ég er ekki viss um að við Íslend­ingar gerum okkur fylli­lega grein fyrir því hvað við eigum magn­aða fram­línu og gott...

Posted by Dagur B. Egg­erts­son on Fri­day, April 10, 2020


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent