Smitum enn að fjölga á Vestfjörðum

Alls eru nú 74 tilfelli COVID-19 skráð á Vestfjörðum. Tvö ný smit voru greind í gær, bæði hjá fólki sem hefur tengsl við hjúkrunarheimilið Berg.

Smitum heldur áfram að fjölga á norðanverðum Vestfjörðum.
Smitum heldur áfram að fjölga á norðanverðum Vestfjörðum.
Auglýsing

Tveir ein­stak­ling­ar, báðir með tengsl við hjúkr­un­ar­heim­ilið Berg í Bol­ung­ar­vík­, ­greindust með COVID-19 í gær. Smitum heldur áfram að fjölga á norð­an­verð­u­m Vest­fjörð­um.

Alls eru nú 74 til­felli sjúk­dóms­ins skráð í umdæm­inu öllu, segir í til­kynn­ingu frá­ lög­regl­unni á Vest­fjörð­um. Hafa ber þó í huga að umrædd taln­ing byggir á lög­heim­il­is­skrán­ingu við­kom­andi, sem kann að dvelja utan umdæm­is­ins. Þannig er því til að mynda háttað með nýskráð til­felli í Vest­ur­byggð og hið sama á við um ­skráða til­vikið í Hólma­vík­/­Strand­ir.

Ljóst er að smitin eru í vexti, segir í til­kynn­ingu lög­regl­unn­ar. Eins og staðan er í dag er sjúk­dóm­ur­inn bund­inn við norð­an­verða Vest­firði. Engin virk smit eru í Reyk­hóla­hreppi, Hólma­vík, Árnes­hreppi og Kald­rana­nes­hreppi og hið sama á við um Vest­ur­byggð og Tálkna­fjörð.

Auglýsing

„Enn og aftur er brýnt fyrir öllum sem finna fyrir flensu­ein­kennum að halda sig heima og hafa sam­band við sína heilsu­gæslu­stöð, sjá heima­síður þeirra, www.hvest.is og www.hve.is Læknir eða annar heil­brigð­is­starfs­maður mun veita ráð og ákveða ­sýna­töku.“

Hertar reglur áfram í gildi

Aðgerða­stjórn­ al­manna­varna á Vest­fjörðum hefur ákveðið í sam­ráði við sótt­varna­lækni að halda ó­breyttu fyr­ir­komu­lagi sótt­varna á norð­an­verðum Vest­fjörðum til að minnsta ­kosti 26. apr­íl.

Í því fel­st að:

Leik- og grunn­skólar á norð­an­verðum Vest­fjörðum verði áfram lok­að­ir. Þó skulu börn á for­gangs­listum fá vistun á leik­skólum og 1. og 2. bekkjum grunn­skóla.

Sam­komu­bann verði miðað við fimm manns (þetta á þó ekki við um fjöl­skyldur sem búa á sama heim­il­i).

Fjöld­i við­skipta­vina í stærri versl­unum (>150 fer­metr­ar) sé að hámarki 30 á hverj­u­m ­tíma.

„Það er mat að­gerða­stjórnar að ofan­greindar aðgerðir séu að skila árangri,“ segir í til­kynn­ingu. „Enn eru þó að grein­ast ný smit og all­margir ein­stak­lingar í sam­fé­lag­inu eru veik­ir. Það er því afar brýnt að fólk haldi sig heima, hald­i ­sam­skipta­fjar­lægð, tak­marki ferðir sínar og fylgi leið­bein­ingum þess­um.“

Aðgerða­stjórn­ fundar og metur stöð­una á degi hverj­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent