„Við vitum hins vegar ekki hve lengi vinstri slagsíða hægrimanna endist“

Formaður Samfylkingarinnar segir að hann hafi þá trú að traust á stjórnmálum muni aukast með víðtækari samvinnu stjórnmálahreyfinga. Ríkisstjórnin hafi hins vegar ekki treyst sér í það samstarf.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

„Við vitum að við erum í betri færum en mörg lönd til að bregð­ast við, þar sem við höfum þrátt fyrir allt borið gæfu til, að hafa mikla sam­neyslu, með öfl­ugu opin­beru heil­brigð­is­kerfi, góðum skólum og vel­ferð­ar­þjón­ustu – þótt vissu­lega þurfi að gera enn bet­ur. Við vitum líka að jafn­vel hægri­s­inn­að­asta fólk áttar sig á þessu og vill að rík­is­valdið komi nú atvinnu­líf­inu til bjargar – og það þarf vissu­lega að gera það. Veita skjóta og skil­virka aðstoð sem þarf þó í rík­ara mæli að ná til fólks­ins sjálfs og heim­ila þess. Við vitum hins vegar ekki hve lengi vinstri slag­síða hægri­manna end­ist – þótt okkur gruni það.“

Þetta er meðal þess sem Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði í ræðu sinni eftir að for­sæt­is­ráð­herra flutti munn­lega skýrslu um áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins og um við­brögð stjórn­valda við þeim áhrif­um. 

Logi sagði í ræðu sinni að það þyrfti að gera mun meira en þegar hefði verið gert. Styðja þyrfti betur við ýmsa hópa, til dæmis lítil fyr­ir­tæki sem bannað hefur verið að veita þjón­ustu, heim­ila, leigj­enda, atvinnu­lausra og náms­manna.

Auglýsing
Hann sagð­ist hafa þá trú að traust á stjórn­málum myndi aukast með víð­tæk­ari sam­vinnu stjórn­mála­hreyf­inga á þessum furðu­legu tím­um. „Því þykir mér það mið­ur, að rík­is­stjórnin hafi ekki treyst sér í nán­ara sam­starf allra flokka um aðgerða­pakka til handa atvinnu­lífi og almenn­ingi. Flest okkar nágranna­ríki hafa farið þá leið.“

Vill áherslu á jöfnuð og fjöl­breytni

Logi sagði að í augna­blik­inu væri verið að slökkva elda en í fram­hald­inu þyrfti að hafa kjark og fram­sýni til að ráð­ast í breyt­ingar á skatt­kerf­inu; deila gæðum jafnar og tryggja að auð­lindir lands­ins skili almenn­ingi sann­gjörnum arði. „Óhjá­kvæmi­legt er að þau sem eiga meira að borga meira, og þeim sem eiga minna sé hlíft. Og þó sam­staða, sam­á­byrgð og æðru­leysi almenn­ings vegi vissu­lega mjög þungt, þegar við siglum okkur hægt og rólega út úr þess­ari krísu, hafa síð­ustu vikur líka sýnt okkur nauð­syn þess að leggja í sam­eig­in­lega sjóði sem geta tryggt öfl­ugt opin­bert heil­brigð­is­kerfi, vel­ferð­ar­þjón­ustu og örygg­is­net þegar á þarf að halda. Þess vegna er einmitt ágætur tími núna til að minna sig á skatt­greiðslur eru vafa­laust besta fjár­fest­ing sem nán­ast hvert og eitt okkar ræðst í yfir ævina.“

Til fram­tíðar þyrfti að skjóta styrk­ari stoðum undir fjöl­breytt­ara atvinnu­líf og skapa fleiri störf sem byggi á hug­viti. „Til þess þurfum við þó að ráð­ast í bylt­ing­ar­kennda sókn í mennta­mál­um. Það kann að virka nokkuð bratt að horfa lengra fram í tím­ann nokkra daga við þessar aðstæð­ur, en við höfum ein­fald­lega ekki efni á öðru. 



Tvö orð þurfa að verða leið­ar­stef í leið­angrinum framund­an: Jöfn­uður og fjöl­breytn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent