Búast má við rekstrarerfiðleikum á Íslandi þar til að bóluefni finnst

Prófessor í hagfræði segir í grein í nýjustu Vísbendingu að samdrátturinn nú verði svipaður og þegar síldin hvarf árið 1968 og árið 2009, eftir að fjármálakerfið hrundi. Hann kallar eftir því stjórnvöld birti áætlun um það hvernig hagkerfið verði örvað.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.
Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.
Auglýsing

Helsti vandi hag­stjórnar á Íslandi um þessar mundir er sá að búast má við að rekstr­ar­erf­ið­leikar fyr­ir­tækja haldi áfram þangað til bólu­efni við veirunni sem veldur COVID-19 er fund­ið. Það gæti dreg­ist fram á næsta ár, jafn­vel sum­arið 2021. 

Þetta skrifar Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, í grein sem birt­ist í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ing­ar. 

Búast megi við því að sam­dráttur verði á bil­inu fjögur til sjö pró­sent í ár, og því svip­aður og árið 1968, eftir að síldin hvarf af Íslands­mið­um, og árið 2009 í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins. Þessi tvö ártöl eru fræg í hag­sögu Íslands.

Auglýsing
Samdrátturinn nú verði hins vegar ann­ars eðl­is. „Árið 1968 hvarf síldin af Íslands­miðum og útflutn­ings­tekjur lækk­uðu sem olli sam­drætti á fram­leiðslu og atvinnu. Árið 2009 hafði fjár­mála­starf­semi hrunið og fram­lag hennar til lands­fram­leiðslu því dreg­ist sam­an. Sam­drátt­ur­inn nú er allt ann­ars eðlis en sá sem varð við hrun síld­ar­stofns­ins árið 1968 og við fall bank­anna árið 2008. Sam­drátt­ur­inn stafar ann­ars vegar af því að erlendir ferða­menn hafa, von­andi tíma­bund­ið, hætt við komur sínar hingað til lands­ins vegna sótt­varna heima fyrir og Íslend­ingar geta ekki lengur notið þjón­ustu eða veitt hana inn­an­lands vegna inn­lendra sótt­varna. Þannig má segja að sam­drátt­ur­inn nú sé stjórn­valds­á­kvörð­un.“

Að sögn Gylfa mun sam­drátt­ur­inn taka enda þegar sótt­varnir verða ekki lengur nauð­syn­legar eftir að bólu­efni hefur verið fund­ið. 

Gylfi segir að Ísland geti notað land­fræði­lega ein­angrun sína til þess að prófa þá sem komi til lands­ins fyrir far­sótt­inni og setja þá í ein­angrun þangað til að bólu­efni hefur verið fund­ið. „Slíkt myndi aftra þeim fáu erlendu ferða­mönnum sem hingað vildu koma í sumar frá því að koma til lands­ins en skapa svig­rúm fyrir aukna inn­lenda eft­ir­spurn. Nú þegar áætlun um slökun á sam­komu­banni hefur verið birt væri gagn­legt að stjórn­völd birtu sam­hliða efna­hags­á­ætlun um það hvernig hag­kerfið verði örvað á næstu mán­uð­um. Slík örvun yrði í formi auk­innar inn­lendrar eft­ir­spurn­ar, ekki ein­ungis á vegum hins opin­bera, heldur einnig í formi ferða­þjón­ustu sem mark­aðs­setur sig inn­an­lands.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent