Íslensk erfðagreining hefur hafið mótefnamælingar – Ákveðnir hópar hafa forgang

Fyrst í stað setur Íslensk erfðagreining ákveðna hópa í forgang í mótefnamælingar. Nú er einblínt á fólk sem hefur verið með staðfesta COVID-19 sýkingu en er batnað.

Skimun Íslenskrar erfðagreiningar
Auglýsing

Íslensk erfða­grein­ing hefur hafið mótefna­mæl­ingar vegna COVID-19. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á Face­book-­síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Fram kemur að fyrst í stað setji þau ákveðna hópa í for­gang og bjóði þeim að koma. Nú sé ein­blínt á fólk sem hefur verið með stað­festa COVID-19 sýk­ingu en sé batn­að.

Þá sé ætl­unin að bjóða stórum hluta þess hóps sem hefur verið í sótt­kví að koma í mótefna­mæl­ingu. Í fram­hald­inu verði von­andi hægt að bjóða almenn­ingi uppá slíkar mæl­ingar en vegna umfangs­ins sé óvíst hvenær það verð­ur. Það átak verði kynnt sér­stak­lega í fjöl­miðl­um.

Auglýsing

Enn fremur segir í til­kynn­ingu Íslenskrar erfða­grein­ingar að mikið álag sé á Þjón­ustu­mið­stöð rann­sókna­verk­efna vegna þessa og vilja þau biðja fólk um að sýna bið­lund ef það vill kom­ast í slíka mæl­ingu.

Íslensk erfða­grein­ing hefur hafið mótefna­mæl­ingar vegna COVID-19. Fyrst í stað setjum við ákveðna hópa í for­gang og...

Posted by Íslensk erfða­grein­ing on Thurs­day, April 16, 2020

Mótefni hjá sýktum stað­­fest



Kári Stef­áns­son, for­­stjóri Íslenskrar erfða­­grein­ing­­ar, sagð­ist á dag­legum blaða­manna­fundi almanna­varna í gær reikna með að skimun fyrir mótefnum gegn veirunni sýndi hver hin raun­veru­­lega dreif­ing veirunnar væri í sam­­fé­lag­inu.



Þá var ­búið að mótefna­­mæla milli 700 til 800 manns í gær, þar af voru um 500 sem ekki var vitað til­ að hefðu sýkst. Kári sagði að nú þegar sæist það mynstur sem búist var við: ­Meiri­hluti þeirra sem hefur sýkst er kom­inn með mótefni.



Fjöl­marg­ar ­þjóðir heims eru nú að hefja mótefna­­mæl­ing­­ar. Kári sagði að til þess yrði að horfa þegar tak­­mark­­anir á ferða­lögum til og frá Íslandi væru ákveðn­­­ar. „Þú vilt ekki hleypa fólki inn í landið frá löndum sem hafa ekki verið að gera nokk­urn skap­aðan hlut.“



Fram­lag ­Ís­­lenskrar erfða­­grein­ingar til þró­unar bólu­efnis gegn veirunni verður að sögn Kára það að sýna fjöl­breyt­i­­lega bygg­ingu henn­­ar. Hann sagð­ist bjart­­sýnni en Þórólfur Guðn­a­­son sótt­­varna­læknir á að bólu­efni yrði fljótt aðgeng­i­­leg­t. Klínískar próf­­anir á því væru þegar hafn­­ar. Sagð­ist hann gera sér vonir um að það yrði, í ein­hverju formi, til­­­búið innan árs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent