„Það er ekki kominn 4. maí“

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild sagðist knúinn til þess að minna fólk á að ekki væri kominn 4. maí, á upplýsingafundi dagsins. Yfirvöld óttast að bakslag gæti komið í faraldurinn ef fólk slakar á og fer á svig við reglur.

Víðir Reynisson á fundinum í dag.
Víðir Reynisson á fundinum í dag.
Auglýsing

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn minnti á að það er ekki kom­inn 4. maí, við upp­haf dag­legs upp­lýs­inga­fundar almanna­varna í dag. Hann sagði tölu­vert hafa borið á til­kynn­ingum um að fólk væri ekki að fylgja reglum sam­komu­banns.

Hann sagði að af þessum sökum ótt­uð­ust yfir­völd að bakslag gæti komið í far­ald­ur­inn og að upp­lifunin væri sú að „fólki hafi verið létt“ þegar upp­lýs­ingar voru gefnar út um til­slak­anir á sam­komu­bann­inu fyrr í vik­unni. Fólk hafi þá leyft sér að fara að gera hluti sem það hefur ekki verið að gera und­an­farnar vik­ur.

Almanna­varnir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa varað sér­stak­lega við því að hópar ung­menna safn­ist saman á leik­svæðum á kvöld­in, en eitt­hvað hefur borið á því að ung­lingar séu að safn­ast saman í stórum hópum und­an­farna daga.

Auglýsing

Í sam­tali við Vísi fyrr í dag sagði Víðir að ef upp komi hópsmit við slíkar aðstæður eða sam­bæri­legar gæti það hæg­lega sett áætl­anir um slökun sam­komu­banns­ins í upp­nám.

„Það er fleira fólk á ferli,“ sagði Víðir á fund­in­um, en bætti svo við að vissu­lega hefðu yfir­völd komið því á fram­færi út í sam­fé­lagið að fólk mætti ekki hætta að lifa á tímum sam­komu­banns og það væri enn í gildi. Þó þyrfti áfram að fylgja regl­un­um.

Vís­bend­ingar væru þannig að ber­ast til almanna­varna­deildar um að verið væri að skipu­leggja manna­mót sem ekki væru við hæfi á meðan núver­andi sótt­varna­ráð­staf­anir eru í gildi og því væri hann knú­inn til þess að minna á að regl­urnar hafa ekk­ert breyst, þrátt fyrir að til­kynnt hafi verið að ögn verði slakað á þeim 4. maí.

Tveggja metra reglan komin til að vera um nokkra hríð

Víðir minnti líka á að tveggja metra reglan verður áfram í gildi við öll manna­mót, líka eftir 4. maí og að sá dagur væri eng­inn „enda­dag­ur“ í því sam­fé­lags­lega verk­efni sem verið er að fást við.

„Þetta verður erfitt, að vera með fimm­tíu manna veislu í fimm­tíu fer­metrum, það er aug­ljóst að það þarf meira pláss en það,“ sagði Víð­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent