Arion banki ætlar að hætta við tíu milljarða króna arðgreiðslu

Á framhaldsaðalfundi Arion banka sem hefur verið boðaður 14. maí næstkomandi er einungis eitt mál á dagskrá, að hætta við að greiða tíu milljarða króna í arð til hluthafa.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Auglýsing

Boðað hefur verið til fram­halds­að­al­fundar í Arion banka þann 14. maí næst­kom­andi þar sem ein­ungis eitt mál er á dag­skrá: að hætta við greiðslu arðs vegna síð­asta árs. 

Arion banki hagn­að­ist um 1,1 millj­­arð króna í fyrra og arð­­semi eigin fjár bank­ans var 0,6 pró­­sent. Til stóð að greiða tíu millj­­arða króna arð­greiðslu til hlut­hafa vegna síð­­asta árs. Það stóð því til að greiða út nífaldan hagnað í arð. Þau áform eru í takti við yfir­­lýsta stefnu bank­ans, sem er að öllu leyti í einka­eigu og skráður á hluta­bréfa­­mark­að, að greiða út tugi millj­­arða króna eigin fé hans til eig­enda hans. 

Frá því að upp­­haf­­leg ákvörðun um þá end­­ur­greiðslu var tekin hefur staðan í efna­hags­líf­inu gjör­breyst. 

Auglýsing
Greint var frá því að sveiflu­­jöfn­un­­ar­auk­i, sem á að auð­velda banka­­­kerf­inu að styðja við heim­il­i og fyr­ir­tæki með því að skapa svig­­­rúm til nýrra útlána sem nemur að öðru óbreyttu allt að 350 millj­­­örðum króna, hefði verið afnumin 18. mars síð­­ast­lið­inn. 

Dag­inn áður, 17. mars, fór fram aðal­­fundur Arion banka. Þar var sam­­þykkt að fresta arð­greiðsl­unni til hlut­hafa um tvo mán­uði, eða fram í miðjan maí. Auk þess var heim­ild stjórnar til að kaupa allt að tíu pró­­­­sent af hlutafé bank­ans end­­­­ur­nýj­uð. Miðað við mark­aðsvirði Arion banka í dag myndi það  þýða að í kringum ell­efu millj­­­arða króna greiðslu til eig­enda bank­ans. 

Þrýst­ingur á að sleppa arð­greiðslu

Þegar hafði verið gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir ætl­aðar arð­greiðslur úr rík­is­bönk­unum tveim­ur, Íslands­banka og Lands­bank­an­um. Þann 20. mars, var sent bréf til Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hald rík­is­ins í bönk­unum tveim­ur, fyrir hönd Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þar var farið fram á að hún myndi horfa fram hjá kröfum um ávöxtun og arð­greiðslur á árinu 2020 og að þeim skila­boðum yrði komið áfram til stjórna fjár­mála­fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins.

­Bjarni var að segja rík­is­bönk­unum tveimur að í ljósi þeirra aðstæðna sem komnar eru upp vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins þá ættu þeir ekki að greiða út arð.

Arion banki hafði hins vegar ekki end­ur­skoðað sín áform um að greiða út arð í maí. Í til­kynn­ingu sem bank­inn sendi til Kaup­hallar Íslands 27. mars síð­ast­lið­inn, vegna aðgerða sem hann hefur gripið til vegna COVID-19, kom þvert á móti fram að eig­in­fjár- og lausa­fjár­staða bank­ans væru mjög sterk án þess að til­lit sé tekið til „fyr­ir­sjá­an­legrar arð­greiðslu að fjár­hæð 10 millj­arða króna“. 

Þar sagði enn fremur að auk ákvörð­unar um að fresta arð­greiðslu í tvo mán­uði myndi bank­inn „ekki fara í frek­ari kaup á eigin bréfum fyrr en óvissa vegna heims­far­ald­urs­ins hefur minnk­að.“ 

Ásgeir Jóns­­son seðla­­banka­­stjóri sagði í við­tali við Frétta­blaðið í síð­ustu viku að Seðla­­bank­inn yrði „mjög brún­a­þung­­ur“ ef sú staða kæmi upp síðar á árinu að Arion banki myndi greiða hlut­höfum sínum út arð. „Það væri algjör­­lega ótækt af bank­­anum að íhuga slíkar arð­greiðslur við þessar aðstæð­­ur, þar sem verið er að veita bönk­­unum til­­slak­an­ir, og hið sama gildir um kaup á eigin bréf­­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent