Fjögur dótturfélög Norwegian gjaldþrota

Fjögur dótturfélög Norwegian í Svíþjóð og Danmörku hafa verið lýst gjaldþrota. Um fjögur þúsund og sjöhundruð manns missa vinnuna í þessum sviptingum. Norwegian rær nú lífróður sem aldrei fyrr.

Norwegian
Auglýsing

Fjögur dótt­ur­fé­lög flug­fé­lags­ins Norweg­i­an, þrjú í Dan­mörku og eitt í Sví­þjóð, hafa verið lýst gjald­þrota, en um er að ræða fyr­ir­tæki sem önn­uð­ust starfs­manna­hald flug­fé­lags­ins í Sví­þjóð, Dan­mörku, Finn­landi, Bret­landi, Spáni og Banda­ríkj­un­um.

Í frétt danska rík­is­út­varps­ins DR segir að alls hafi 1.571 flug­maður og 3.134 flug­freyjur og -þjónar nú misst vinn­una vegna gjald­þrota félag­anna fjög­urra.

Eftir standa hjá flug­fé­lag­inu um 700 flug­menn og 1.300 flug­þjónar með starfs­stöðvar í Nor­egi, Frakk­landi og á Ítal­íu, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu frá Norweg­i­an.

Auglýsing

„Þetta er versta krísa sem flug­brans­inn hefur nokkru sinni staðið frammi fyrir og við höfum gert allt sem í okkar mætti stendur til þess að hindra það, sem nú hefur gerst með dótt­ur­fé­lög okkar í Sví­þjóð og Dan­mörku,“ er haft eftir Jacob Schram, for­stjóra Norweg­i­an, í til­kynn­ingu félags­ins.

For­stjór­inn segir að það verði erfitt verk­efni að koma flug­fé­lag­inu í gegnum þessar hremm­ing­ar. Norweg­ian hefur staðið höllum fæti um nokk­urt skeið og vand­ræði þess hafa ekki minnkað eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn setti ferða­lög á milli landa í algört upp­nám sem ekki sér fyrir end­ann á.

Sam­kvæmt frétt DR skuldar Norweg­ian í heild­ina um 60 millj­arða norskra króna, eða um 835 millj­arða íslenskra króna. Mark­aðsvirði félags­ins í kaup­höll­inni í Ósló er undir millj­arði norskra króna og hefur hrapað um meira en 80 pró­sent frá því í árs­byrj­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent