„Hingað til hefur tekist að forðast fjármálakreppu“

Fyrrverandi seðlabankastjóri Íslands segir að miklu máli hafi skipt að viðnámsþróttur banka var byggður upp með auknum eiginfjár og lausafjárkröfum eftir fjármálakreppuna 2008.

Már Guðmundsson
Auglýsing

„Í fjár­málakrepp­unni 2008 voru seðla­bankar í fremstu víg­línu. Það var í sam­ræmi við eðli krepp­unn­ar. Núver­andi kreppa er ann­ars konar og nú verða rík­is­stjórnir og opin­ber fjár­mál að taka sér stöðu fremst. Seðla­bankar hafa samt sem áður komið með mikið fram­lag til að örva eft­ir­spurn með lækkun vaxta og víð­tækum eigna­kaup­um. Áhrifin koma aðal­lega fram að loknu lok­un­ar­tíma­bil­in­u.“

Þetta skrifar Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, í grein sem birt­ist í síð­ustu útgáfu Vís­bend­ingar sem barst áskrif­endum fyrir helgi. Már lét af störfum í Seðla­banka Íslands í ágúst í fyrra eftir að hafa gegnt stöðu seðla­banka­stjóra í tíu ár. 

Auglýsing
Í grein­inni segir hann seðla­banka og fjár­mála­eft­ir­lit hafa gegnt lyk­il­hlut­verki í því að forða fjár­málakreppu og stuðla að því að fjár­mála­kerfið upp­fylli miðl­un­ar­hlut­verk sitt. „Þá þurfa seðla­bankar að stuðla að virkni mark­aða og miðl­un­ar­ferlis pen­inga­stefn­unn­ar. Þetta hefur kallað á marg­vís­legar og umfangs­miklar aðgerðir sem fel­ast m.a. í lausa­fjár­fyr­ir­greiðslu og inn­gripum í ein­staka mark­aði þar sem hnökrar hafa komið upp. Þá hefur gjald­eyr­is­forði verið not­aður til að milda áhrif útflæðis fjár­magns í nýmark­aðs­ríkj­um. Slakað hefur verið á sveiflu­tengdum eig­in­fjár­kröfum banka sem hafa sannað gildi sitt. Þá hafa fjár­mála­eft­ir­lit einnig slakað á klónni til að auð­velda bönkum að fjár­magna fyr­ir­tæki í gegnum upp­hafs­erf­ið­leik­ana.“

Með gjald­eyr­is­skipta­samn­ingum Seðla­banka Banda­ríkj­anna hafi  tek­ist að vinda að hluta ofan af áhlaupi á doll­ara­fjár­mögnun utan Banda­ríkj­anna. „Hingað til hefur tek­ist að forða fjár­málakreppu. Auk aðgerð­anna skiptir þar miklu að við­náms­þróttur banka var byggður upp með auknum eig­in­fjár og lausa­fjár­kröfum eftir fjár­málakrepp­una 2008.“

Hægt er að ger­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent