Guðni með 91 prósent fylgi en stuðningsmenn Trump á Íslandi styðja Guðmund Franklín

Guðmundur Franklín Jónsson nýtur meiri stuðnings hjá stuðningsmönnum Donald Trump á Íslandi en sitjandi forseti, Guðni Th. Jóhannesson.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Auglýsing

Um 91 pró­sent þeirra lands­manna sem taka afstöðu ætla að kjósa Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, í for­seta­kosn­ing­unum síðar í þessum mán­uði, sam­kvæmt nið­ur­stöðu könn­unar sem EMC rann­sóknir fram­kvæmdu dag­anna 3. til 8. júní. Um níu pró­sent ætla að kjósa Guð­mund Frank­lín Jóns­son. 

Guðni nýtur yfir­gnæf­andi stuðn­ings kjós­enda nær allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi. Þeir sem skera sig þar úr eru kjós­endur Flokks flokks­ins, þar sem 18,3 pró­sent segj­ast ætla að kjósa Guð­mund Frank­lín, og kjós­endur Mið­flokks­ins, en 39,9 pró­sent þeirra styðja hann. 

EMC rann­sóknir spurðu líka hvern við­kom­andi myndu kjósa í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum ef þeir gætu kosið þar í nóv­em­ber næst­kom­andi. Þar kom í ljós að 94,2 pró­sent þeirra sem myndu kjósa Joe Biden, fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins, ætla sér að setja x við Guðna. Af þeim sem myndu kjósa Don­ald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna og fram­bjóð­anda Repúblíkana­flokks­ins, ætl­aði hins vegar 52,7 pró­sent að kjósa Guð­mund Frank­lín. 

Auglýsing
Guðni er með mest fylgi í ald­urs­hópnum 18-34 ára, þar sem 96,1 pró­sent aðspurðra sagð­ist ætla að kjósa hann, en minnst hjá 55 ára og eldri, þar sem fylgið var þó 86,3 pró­sent. Fylgi for­set­ans er nán­ast það sama á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á lands­byggð­inni og aðeins meira, en vart mæl­an­lega, hjá þeim sem eru með fram­halds- eða háskóla­próf en þeim sem eru með grunn­skóla­próf sem æðstu mennt­un. 

Tölu­verður munur er þó á afstöðu kynj­anna til for­seta­fram­bjóð­end­anna. Guð­mundur Frank­lín myndi fá 15,7 pró­sent atkvæða ef ein­ungis karlar mættu kjósa en hann er vart með mæl­an­legt fylgi hjá kon­um, þar sem 97,2 pró­sent þeirra segj­ast styðja Guðn­a. 

Fjöldi svar­enda var 825. Könn­unin var fram­kvæmd á Net­inu og send á þátt­tak­endur í svar­enda­hópi EMC Rann­sókna. Um kvóta­könnun var að ræða þar sem tryggt var að svar­endur end­ur­spegla lands­menn með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu með hlut­falli í svar­enda­hópum og vigt­un. Nið­ur­stöður eru greindar eftir lýð­fræði (kyni, aldri og búsetu) og mennt­un. Alls tóku 89 pró­sent þeirra sem svör­uðu könn­un­inni afstöðu.

Nið­ur­staða EMC er nán­ast hin sama og í könnun Gallup sem gerð var dag­ana 29. maí til 3. júní 2020. Þar mæld­ist Guðni með 90,4 pró­sent fylgi og Guð­mundur Frank­lín með 9,6 pró­sent.  Í þeirri könnun voru kjós­endur Mið­flokks­ins líka lang­lík­leg­astir til að kjósa Guð­mund Frank­lín, en ríf­lega 45 pró­sent þeirra sögð­ust ætla að gera það. 

Kjós­endur Mið­flokks­ins eru líka allra íslenskra kjós­enda lík­leg­astir til að styðja Don­ald Trump. Í könnun sem EMC birti í byrjun júní kom fram að ein­ungis fjögur pró­sent Íslend­inga myndi kjósa Trump ef þeir hefðu kosn­inga­rétt í Banda­ríkj­un­um. Af kjós­endum Mið­flokks­ins sögð­ust hins vegar 29 pró­sent styðja sitj­andi Banda­ríkja­for­seta. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent