Munur á stýrivöxtum og vöxtum á húsnæðislánum eykst

Vextir á húsnæðislánum hafa lækkað mikið á undanförnum misserum en lækkanirnar ná þó ekki að halda í við lækkun stýrivaxta.

peningar
Auglýsing

Vaxta­munur á hús­næð­is­lánum og stýri­vöxtum hefur auk­ist um eitt til 1,5 pró­sentu­stig. Þetta er nið­ur­staða úttektar ASÍ um þróun á hús­næð­is­vöxtum sem tekur fyrir tíma­bilið frá 1. jan­úar 2019 til 7. júní 2020. Lán­tak­endur hafa því ekki notið góðs af lækkun stýri­vaxta að fullu.



„Sem dæmi um auk­inn vaxta­mun má nefna að í byrjun tíma­bils var 1,5 pró­sentu­stiga munur ástýri­vöxtum og óverð­tryggðum breyti­legum vöxtum Lands­bank­ans og Íslands­banka en í dag er mun­ur­inn kom­inn upp í 2,5 pró­sentu­stig hjá Lands­bank­anum og 2,7% hjá Íslands­banka. Í byrj­un ­tíma­bils var 2,1 pró­sentu­stiga munur á stýri­vöxtum og óverð­tryggðum breyti­legum vöxtum hjá Arion banka en er í dag 2,54 pró­sentu­stig,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 



Það sama er uppi á ten­ingnum hjá líf­eyr­is­sjóðum en sam­kvæmt úttekt­inni hefur munur á breyti­legum vöxtum Brúar farið úr tveimur pró­sentu­stigum í 3,2 pró­sentu­stig og hjá Lífs­verki hefur mun­ur­inn farið úr 1,8 pró­sentu­stigum upp í 3,25 pró­sentu­stig.

Auglýsing


Um breyt­ingu á verð­tryggðum vöxtum lána­stofn­ana segir í til­kynn­ing­unni: „Í sam­an­burði hafa verð­tryggðir breyti­legir hús­næð­is­vextir af grunn­lánum lækkað um 0,4-1,55 pró­sentu­stig og óverð­tryggðir breyti­legir vextir af grunn­lánum um 0,95-3,5 pró­sentu­stig. Óverð­tryggðir fastir vextir til 3-5 ára hafa í mörgum til­fellum lækkað mikið eða á bil­inu 1,55-3,35 pró­sentu­stig en verð­tryggðir fastir vextir út láns­tím­ann minna, um 0,05-0,4 pró­sentu­stig og verð­tryggðir fastir vextir til 3-5 ára um 1,25-1,45 pró­sentu­stig,“



Í til­kynn­ingu seg­ir: „Þrátt fyrir miklar vaxta­lækk­anir hefur munur á stýri­vöxtum og óverð­tryggðum vöxtum af hús­næð­is­lánum í mörgum til­fellum auk­ist á tíma­bil­inu og því hafa lán­tak­endur hús­næð­is­lána að jafn­aði ekki notið góðs af lækkun stýri­vaxta að fullu.“



Í til­kynn­ing­unni eru tekin dæmi um hvaða þýð­ingu lægri vextir geta haft fyrir lán­tak­end­ur. Þar kemur fram að 0,5 pró­sentu­stiga munur á 30 millj­óna króna láni hafi í för með sér auka kostnað sem nemur 150 þús­und krónum fyrir lán­tak­anda á ári. „Ef mun­ur­inn á vöxtum er enn meiri, t.d. 1,5 eða 2 pró­sentu­stig er það auka kostn­aður upp á 450.000-600.000 krónur á ári,“ segir þar enn frem­ur.



Úttektin sýnir þróun á hús­næð­is­vöxtum á grunn­lánum frá 1. Jan­úar 2019  til 7. júní 2020. Hún nær til 15 lána­stofn­ana. Þær eru Lands­bank­inn, Íslands­bank­inn og Arion banki og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Birta, Brú, Festa, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Gildi, Lífs­verk, LSR, Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda, Stapi, Líf­eyr­is­sjóður Verzl­un­ar­manna og Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent