5.500 óafgreiddar umsóknir um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun

Mjög mikil fjölgun umsókna um atvinnuleysisbætur auk nýrra verkefna sem Vinnumálastofnun fékk í kjölfar faraldursins hefur orðið þess valdandi að biðtími er orðinn lengri en æskilegt væri. Um fimmtungur umsóknanna er yfir tveggja mánaða gamall.

1. maí 2019
Auglýsing

Óaf­greiddar umsóknir um atvinnu­leys­is­bætur hjá Vinnu­mála­stofnun eru 5.500 tals­ins og þar af eru 19 pró­sent eldri en átta vikna, eða 1.045 umsókn­ir. Áætlun stofn­un­ar­innar miðar að því að í byrjun sept­em­ber verði allar umsóknir afgreiddar innan átta vikna. Þetta kemur fram í svari Vinnu­mála­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Vinnsla atvinnu­leys­is­bóta fer í gegnum þrjá fasa:

  1. For­vinna umsóknar þar sem kannað er hvort umsóknin upp­fyllir skil­yrði, hvort öll nauð­syn­leg gögn séu til staðar og ef ein­hver gögn vantar er kallað eftir þeim.
  2. Ákvörðun um bóta­rétt á grund­velli umsóknar og þeirra upp­lýs­inga og gagna sem liggja fyr­ir.
  3. Útgreiðsla bóta.

Í svar­inu segir að á milli ákvörð­unar um bóta­rétt og útgreiðslu bóta verði að vera skýr aðskiln­aður sem þýðir að sömu starfs­menn mega ekki koma að báðum þessum þáttum við vinnslu umsókna.

Auglýsing

Bið­tím­inn lengri en æski­legt væri

Þá kemur fram að Vinnu­mála­stofnun sé með­vituð um að bið­tími eftir bótum sé lengri en æski­legt er því bak við hverja umsókn sé ein­stak­lingur og fjöl­skyldur sem búa við óvissu­á­stand í kjöl­far atvinnu­miss­is.

„Mjög mikil aukn­ing í umsóknum um atvinnu­leys­is­bætur auk nýrra verk­efna sem stofn­unin fékk í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins hefur orðið þess vald­andi að bið­tími er orð­inn lengri en æski­legt væri,“ segir í svar­in­u. 

Stofn­unin hafi bætt við sig fólki, end­ur­skipu­lagt ferla og for­gangs­röðun til að mæta þessu en það taki tíma áður en þær aðgerðir skili sér að fullu.

Nú stendur yfir smíði á nýju tölvu­kerfi fyrir Vinnu­mála­stofnun sem stefnt er að að verði tekið í notkun í byrjun næsta árs. Það standa vonir til að við inn­leið­ingu þess muni ferlið við afgreiðslu atvinnu­leys­is­um­sókna stytt­ast til muna, að því er fram kemur í svari stofn­un­ar­inn­ar. 

Atvinnu­leysi lækkar milli mán­aða – en á þó hugs­an­lega eftir að aukast aftur

Atvinn­u­­leysi í júní mæld­ist 9,5 pró­­sent og lækkar umtals­vert milli mán­aða en það var 13 pró­­sent í maí. Almennt atvinn­u­­leysi var 7,5 pró­­sent í júní sem er mjög svipað og mán­uð­ina tvo á undan en atvinn­u­­leysi tengt minn­k­uðu starfs­hlut­­falli er 2,1 pró­­sent og hefur minnkað hratt. Þetta kemur fram í mán­að­­ar­­skýrslu Vinn­u­­mála­­stofn­unar um vinn­u­­mark­að­inn á Íslandi.

Í skýrsl­unni segir að atvinn­u­­leysi tengt minn­k­uðu starfs­hlut­­falli hafi lækkað hraðar heldur en gert var ráð fyr­­ir. Til sam­an­­burðar mæld­ist atvinn­u­­leysi mest í apr­íl, 17,8 pró­­sent, en af því var atvinn­u­­leysi vegna minn­k­aðs starfs­hlut­­falls 10,3 pró­­sent. Í maí mæld­ist atvinn­u­­leysi 13 pró­­sent og af því var atvinn­u­­leysi vegna minn­k­aðs starfs­hlut­­falls 5,6 pró­­sent.

Í Hag­sjá Lands­bank­ans sem birt­ist í dag segir að almennt atvinnu­leysi muni trú­lega aukast nokkuð fram í sept­em­ber enda mikið af hóp­upp­sögnum að koma til fram­kvæmda síð­sum­ars, einkum í ágúst. Lík­legt sé að almennt atvinnu­leysi fari yfir 8 pró­sent í ágúst, en atvinnu­leysi tengt hluta­bóta­leið­inni verði þá hverf­andi, enda muni sú leið renna sitt skeið á enda í lok ágúst.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent