Risavaxinn björgunarpakki samþykktur

Það var tekist á af hörku á fundi leiðtoga Evrópusambandsins í Brussel. Að lokum tókst þó vansvefta leiðtogunum að ná samkomulagi um umfangsmikinn björgunarpakka vegna COVID-19.

Angela Merkel kanslari Þýskalands.
Angela Merkel kanslari Þýskalands.
Auglýsing

Eftir að hafa tek­ist á um málið í tæpa fimm sól­ar­hringa hafa leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins loks kom­ist að sam­komu­lagi um björg­un­ar­pakka vegna efna­hags­á­hrifa far­ald­urs kór­ónu­veirunn­ar. Samn­inga­við­ræð­urnar voru leiddar af Ang­elu Merkel kansl­ara Þýska­lands og Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta. Björg­un­ar­pakk­inn hljóðar upp á 750 millj­arða evra og á að nýta féð, m.a. með styrk­veit­ing­um, til að aðstoða þau ríki sem verst hafa orðið úti í far­aldr­in­um.



„Evr­ópa hefur sýnt að hún getur farið nýjar leiðir við for­dæma­lausar aðstæð­ur,“ sagði Merkel er sam­komu­lagið var í höfn. „For­dæma­lausar aðstæður kalla á for­dæma­lausar aðgerð­ir.“



Fundir leið­tog­anna fóru fram í Brus­sel og ein­kennd­ust af þessum for­dæma­lausu aðstæðum sem Merkel nefndi: Allir voru með grímur á and­liti og áföngum í samn­inga­við­ræð­unum var ekki fagnað með handa­böndum eða faðm­lögum heldur með því að láta oln­boga mæta oln­boga. Fund­ur­inn var sá fyrsti sem leið­togar ESB hitt­ust á í fimm mán­uði eða allt frá því að COVID-far­ald­ur­inn braust út. Til stóð að hann stæði frá föstu­degi til laug­ar­dags en á mánu­dags­morgun höfðu samn­inga­menn setið á fundi alla nótt­ina. Það var svo ekki fyrr en í dögun í dag, þriðju­dag, sem sam­komu­lagið var í höfn.

Auglýsing


Stjórn­mála­skýrendur segja að yfir­vof­andi brott­hvarf Breta úr sam­band­inu hafi m.a. gert það að verkum að ákveðin átök um völd áttu sér stað á fund­in­um. Bretar hafa hingað til leikið stórt hlut­verk á fundum sem þess­um.

Í frétta­skýr­ingu New York Times er því m.a. haldið fram að Merkel hafi stutt til­lögu um aðstoð til landa sunnar í álf­unni sem hún segir hafa farið mun verr út úr far­aldr­inum en ríki norðar í Evr­ópu.

Í grein NYT er m.a. greint frá per­sónu­legum átökum ein­stakra leið­toga. Þannig mun Macron hafa reiðst Sebast­ian Kurz, kansl­ara Aust­ur­rík­is, ekki aðeins fyrir and­stöðu sína við ákveðna hluti í björg­un­ar­pakk­anum heldur fyrir að hafa yfir­gefið kvöld­verð­ar­boð síð­asta laug­ar­dags­kvöld til að svara í sím­ann. Er haft eftir emb­ætt­is­mönnum að svefn­leysi Frakk­lands­for­seta hafi verið ástæða skap­sveifl­un­ar.



Þá eru tekin fleiri dæmi um furðu­legar upp­á­komur af fund­inum m.a. um að Mark Rutte, for­sæt­is­ráð­herra Hollands, hafi verið í við­ræð­unum verið kall­aður „herra nei“ af kol­legum sín­um. Hann seg­ist ekki hafa kippt sér upp við það. „Við erum hér saman komin af því að allir vilja standa vörð um sitt eigið land, ekki til að fara í afmæli hvers ann­ar­s,“ sagði hann og vís­aði þar til þess að afmæli portú­galska for­sæt­is­ráð­herr­ans hafi verið fagnað á meðan fund­inum stóð.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent