Næstu tvær helgar áskorun fyrir lögregluna

Lögreglan er tilbúin í þau verkefni sem í hönd fara nú þegar stærsta ferðahelgi ársins, Verslunarmannahelgin, er á næsta leiti. Hann brýnir fyrir fólki að virða reglur sem gilda um hópamyndanir.

Lögreglan fylgist grannt með hópamyndum í miðborginni sem og annars staðar, einkum um Verslunarmannahelgina.
Lögreglan fylgist grannt með hópamyndum í miðborginni sem og annars staðar, einkum um Verslunarmannahelgina.
Auglýsing

„Það er nokkuð ljóst að næstu dagar og kannski einkum næstu tvær helgar eru tals­verð áskorun fyrir lög­reglu­liðin í land­inu," sagði Karl Steinar Vals­son yfir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna, síð­asta fund­inum í bil­i. 

Hópa­myndum er það sem lög­reglan hefur helst áhyggjur af og Karl Steinar brýnir sér­stak­lega fyrir fólki að virða þær reglur sem í gildi eru. Að hámarki mega 500 manns koma saman og áfram er fólk hvatt til að virða tveggja metra regl­una. 

„Við brýnum fyrir fólki að virða reglur um hópa­mynd­um, hvort serm er á lands­byggð­inni, á tjald­stæðum eða að sækja þær skemmt­anir sem standa til boða í höf­uð­borg­inni eða öðrum byggða­lög­um."

Auglýsing

Lög­reglu­emb­ætti á lands­byggð­inni eru í góðu sam­starfi við rekstr­ar­að­ila tjald­svæða og ann­arra staða þar sem fólk er lík­legt til að hóp­ast saman næstu helg­ar, einkum um Versl­un­ar­manna­helg­ina. 

Að sögn Karls Stein­ars er ekki annað að sjá en að mik­ill vilji sé hjá öllum til að fylgja þeim reglum sem í gildi eru. Lög­reglan sé mjög til­búin í verk­efni næstu helga.



Karl Steinar Valsson



Hvatt til nágranna­vörslu

Hann kom inn á það á fund­inum að það að loka öllum veit­inga­stöðum á sama tíma hefði vissu­lega opnað á hættu á hópa­myndun í mið­borg­inni en sagði að gengið hefði vel að afstýra því og koma í veg fyrir að hópar yrðu of stór­ir. 

„En eftir að þessar breyt­ingar urðu, að afgreiðslu­tím­inn var stytt­ur, hefur orðið aukn­ing á til­kynn­ingum í heima­hús­um. Við höfum fengið fleiri kvart­anir um hávaða í heima­húsum en áður. Á móti kemur að það er minna um verk­efni fyrir lög­reglu í mið­bæn­um," benti hann á. 

Karl Steinar hvatti fólk enn­fremur sér­stak­lega til að huga að nágranna­vörslu nú þegar stórar ferða­helgar fara í hönd og margir eru að heim­an.

 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent