Hrædd um að almenningur bíði eftir bóluefni sem töfralausn

Kate Bingham, sem leiðir starfshóp breskra stjórnvalda sem ætlað er að styðja við þróun og framleiðslu bóluefnis gegn COVID-19, segist ekki bjartsýn á það takist að þróa bóluefni sem veitir varanlegt ónæmi gegn nýju kórónuveirunni.

Kórónuveiran Mynd: Shutterstock
Auglýsing

Kate Bing­ham, sem leiðir starfs­hóp breskra stjórn­valda um þróun og fram­leiðslu bólu­efnis gegn kór­ónu­veirunni, hefur tak­mark­aðar vonir um að þau bólu­efni sem verið er að þróa og hafa gefið til­efni til bjart­sýni að und­an­förnu muni verða „töfra­lausn“. Ólík­legt sé að bólu­efni líti dags­ins ljós sem veiti var­an­legt ónæmi gegn COVID-19.



Þetta segir Bing­ham í við­tali við breska blaðið Fin­ancial Times. Hennar mat er að lík­legra sé að bólu­efni finn­ist sem veiti ónæmi tíma­bund­ið, til dæmis eitt ár í senn, eða þá að bólu­efni komi á markað sem veiti í raun ekki ónæmi heldur dragi úr áhrifum sjúk­dóms­ins sem kór­ónu­veiran veld­ur.

Bing­ham leiðir þá vinnu sem á sér stað á vegum breskra stjórn­valda um að styðja við þró­un, fram­leiðslu og dreif­ingu bólu­efnis þar inn­an­lands. Hún segir Fin­ancial Times að hún sé kvíðin yfir því að fólk telji að bólu­efnið verði töfra­lausn, en í því sam­hengi notar hún orðið silf­ur­kúla (e. sil­ver bul­let) til þess að lýsa því sem hún á við, en það orð­færi er notað á ensku yfir ein­faldar töfra­lausnir á flóknum vanda­mál­u­m. 

„Það mun lík­lega ekki verða,“ segir hún, og telur lík­legra að komi bólu­efni á markað séu líkur á að það þurfi að end­ur­bólu­setja fólk árlega til þess að halda ónæm­inu virku.

Eins og kom fram í sam­an­tekt um þróun bólu­efna hér á Kjarn­anum í gær hafa nýlegar rann­sóknir á þeim sem smit­ast hafa af COVID-19 sýnt fram á að styrkur mótefna sem ónæm­is­kerfið myndar gegn kór­ónu­veirunni minnkar með tím­an­um. 

Auglýsing

Þetta hefur dregið úr vonum um að hægt verði að þróa bólu­efni sem veiti lang­tíma­vörn gegn veirunni, þrátt fyrir að sér­fræð­ingar séu að reyna sitt besta. Bing­ham segir þó að „við verðum að sætta okkur við“ að þegar allt komi til alls verði ef til vill ein­ungis hægt að draga úr ein­kennum veiru­sýk­ing­ar­inn­ar. 

Hún bendir á að aldrei fyrr hafi tek­ist að þróa bólu­efni gegn nokk­urri kór­ónu­veiru, en sú nýja sem hefur verið á flugi um heims­byggð­ina und­an­farið hálft ár, er ein af alls sjö kór­ónu­veirum sem borist geta í menn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent