Gylfi: Stjórnvöld gerðu mistök með því að opna landið

Prófessor í hagfræði, sem varaði við áhrifum af opnun landamæra Íslands í sumar, segir að stjórnvöld hafi stefnt mikilvægum almannagæðum í hættu með því að halda þeim til streitu. Hagsmunir fárra hafi verið teknir fram yfir hagsmuni þorra landsmanna.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.
Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.
Auglýsing

Stjórn­völd gerðu mis­tök með því að opna landið fyrir ferða­mönnum um miðjan júní og ofmátu kosti þess að opna land­ið, en van­mátu þá hættu sem slík opnun skap­aði fyrir efna­hags­líf­ið. Ekki hafi verið gerð heild­stæð athugun á efna­hags­legum áhrifum opn­un­ar­innar við und­ir­bún­ing henn­ar. „Með ákvörð­unum sínum um opnun lands­ins hafa stjórn­völd stefnt mik­il­vægum almanna­gæðum í hættu sem eru þau gæði að geta hitt annað fólk, lært með öðru fólki, unnið með öðru fólki og verslað við annað fólk. Og þar með er efna­hag lands­ins einnig stefnt í hætt­u.“

Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, í grein sem hann birti í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem barst áskrif­endum í gær. 

Hags­munir fárra

Gylfi hélt erindi á mál­þing­inu „Út úr kóf­inu“ sem haldið var í hátíð­ar­sal Háskóla Íslands í byrjun júní. Þar sagði hann meðal ann­ars að hag­kerfið myndi ná sér á strik þótt að fjöldi ferða­manna myndi ekki koma til lands­ins, svo fremi sem að annar far­aldur kór­ónu­veiru myndi ekki skella á síðar á árinu. „Góður árangur í sótt­vörnum í vor hefur skapað almanna­gæði sem bæta lífs­kjör og örva hag­vöxt.“ 

Auglýsing
Í sam­tali við RÚV í kjöl­farið sagði Gylfi að þetta væru almanna­gæði eins og „að geta búið í landi þar sem að er ekki far­sótt, þar sem að fólk getur mætt í vinnu, farið út að borða, það getur hist. Og þessi almanna­gæði eru svo mik­il­væg að maður má passa sig að gera ekk­ert sem að stefnir þeim í voða.“

Hann sagði enn fremur að það að bíða með opnun landamæra hefði gildi. Hags­munir fárra, þeirra sem starfa í ferða­þjón­ustu, mættu ekki verða til þess að heilsu og afkomu ann­arra væri stefnt í hætt­u. 

Þeir sem tapa eiga sér ekki málsvara

Í grein sinni í Vís­bend­ingu segir Gylfi að sum þeirra raka sem færð hafi verið fyrir því að opna landið að nýju hefðu verið rök­leysur eins og „það gengur ekki að hafa landið lok­að“ eða „efna­hags­lífið nær sér ekki á strik í lok­uðu land­i“. 

Hann segir að tals­menn ferða­þjón­ustu hafi haldið uppi mjög öfl­ugum mál­flutn­ingi um að opnun væri bráð­nauð­syn­leg, ella blasti, rétti­lega í mörgum til­vik­um, við gjald­þrot fyr­ir­tækja. Minna hafi hins vegar farið fyrir umræðu um hætt­urnar sem fælust í opn­un­inni. „Engan málsvara var að finna fyrir þá sem mestu hafa að tapa ef veiran tekur að dreifa sér um sam­fé­lagið að nýju; nem­endur í fram­halds­skólum og háskól­um, eldri kyn­slóð­ina, starfs­fólk og við­skipta­vini í þjón­ustu­geir­anum sem er stærsti hluti efna­hags­lífs­ins, og almenn­ing sem var mikið létt þegar sóttin hafði verið kveðin niður í júní. Af frétta­flutn­ingi má ráða að svo til einu hags­mun­irnir sem skipta máli séu hags­munir ferða­þjón­ustu. Þessi áhersla kemur glöggt fram í grein­ar­gerðum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í júní og stýri­hóps um afnám ferða­tak­mark­ana í maí. Sjaldan hefur verið aug­ljósar hversu mikil áhrif ein atvinnu­grein getur haft á ákvarð­anir stjórn­valda.“

Hægt er að ger­­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent