Heilbrigðisráðuneytið: Öllum á að vera ljóst að tveggja metra reglan er mikilvæg

Heilbrigðisráðuneytið segir að öllum ætti að vera að ljóst að tveggja metra reglan sé mjög mikilvæg sóttvarnaaðgerð, en einnig að hún sé ekki ótvíræð skylda á milli einstaklinga af mismunandi heimilum, samkvæmt gildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

Öllum ætti að vera að ljóst að tveggja metra reglan var sett fram sem hluti af mik­il­vægum sótt­varna­ráð­stöf­unum sem snúa beint að ábyrgð ein­stak­linga, rétt eins og það að gæta að reglu­bundnum hand­þvotti, spritta hendur og að fara ekki til vinnu eða á manna­mót finni fólk fyrir ein­kennum sem gætu tengst COVID-19. 

Ekki er þó kveðið á um ótví­ræða skyldu ein­stak­linga til að halda tveggja metra fjar­lægð við þá sem búa á öðrum heim­ilum í gild­andi aug­lýs­ingu um tak­mark­anir á sam­kom­um.

Þetta segir í svari heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um tveggja metra regl­una og þann mis­skiln­ing um hvernig beri að fylgja henni, sem virð­ist vera ansi útbreiddur í sam­fé­lag­in­u.

Sumir hafa túlkað orð ráða­manna og til­mæli stjórn­valda frá því að hert var á tak­mörk­unum á ný, með þeim hætti að tveggja metra reglan væri nú algjör skylda á milli fólks sem býr ekki á sama heim­ili. Orð­send­ingu þess efnis hefur m.a. verið beint að almenn­ingi á vefnum covid.is, en nú stendur reyndar til að breyta því, sam­kvæmt því sem Víðir Reyn­is­son segir við RÚV.

Vin­konu­hitt­ingur Þór­dísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ráð­herra á laug­ar­dag hefur verið í kast­ljós­inu frá því í gær, enda birt­ust myndir þaðan í fjöl­miðlum sem sýndu glögg­lega að tveggja metra reglan var ekki virt þeirra á milli. 

Þór­dís Kol­brún, sem sjálf skrif­aði nýlega að mestu skipti í bar­átt­unni við veiruna að hvert og eitt okkar gæti að sótt­vörnum í okkar dag­lega lífi, sagði að hún hefði setið með vin­konum sínum á borði „eins og vinir gera sem borða sam­an.“

Auglýsing

Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins í dag vegna máls­ins og spurði ein­fald­lega hvort að það væri svo að fólk mætti velja sér vini til þess að hitta án þess að virða tveggja metra regl­una.

Á ábyrgð hvers og eins

Svarið var sem áður segir á þá leið að öllum ætti að vera ljóst að tveggja metra reglan væri mik­il­væg sótt­varna­að­gerð, rétt eins og hand­þvottur og annað sem brýnt hefur verið fyrir almenn­ingi. En hún er þó ekki fest í neinar útgefnar reglur hvað ein­stak­linga varð­ar.

„Gild­andi aug­lýs­ing um tak­mark­anir á sam­komum kveður þannig ekki á um ótví­ræða skyldu ein­stak­linga til að halda tveggja metra fjar­lægð við aðra en þá sem það deilir með heim­il­i,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins, sem vísar í 3. grein aug­lýs­ing­ar­innar þar sem segir að hvar sem fólk komi saman skuli tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli ein­stak­linga sem ekki deila heim­il­i.  

„Eins og fram kom hjá sótt­varna­lækni á upp­lýs­inga­fund­inum kl. 14 í dag þá kveður þetta ákvæði á um skyldur rekstr­ar­að­ila til að haga málum þannig að þeir sem ekki deila heim­ili geti haft a.m.k. tvo metra á milli sín. Í skólum gildir ann­að, þ.e. eins metra regla og síðan er sér­stakt ákvæði um starf­semi þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra reglu vegna eðlis starf­sem­innar en við þær aðstæður er kveðið á um grím­ur,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að fólk þyrfti að bera ábyrgð á sínum athöfnum og að tveggja metra reglan ætti aðal­lega við um umgengni við ein­stak­linga sem maður þekkti engin deili á.









Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent