„Kannski hefði mátt passa betur upp á tveggja metra regluna“

Á upplýsingafundi almannavarna í dag sagði Þórólfur Guðnason að hann héldi að Þórdís Kolbrún hefði ekki brotið sóttvarnalög. Hann sagði það á ábyrgð hvers og eins að halda tveggja metra fjarlægð frá næsta manni.

Þórólfur og Þórdís - samsett
Auglýsing

„Ég held að hún hafi ekki verið að brjóta lögin eins og þau segja nákvæm­lega fyrir um en vissu­lega hefði mátt kannski passa betur upp á tveggja metra regl­una þarna,“ sagði Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag um vin­konu­hitt­ing Þór­dísar Kol­brúnar R. Gylfa­dótt­ur, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra,  sem fjallað var um um helg­ina. 



Þórólfur var spurður að því hvort að Þór­dís Kol­brún hefði brotið tveggja metra reglu um helg­ina. Hann sagði síð­ustu aug­lýs­ingu ekki endi­lega snúa að fólki sem ekki deilir heim­ili heldur hafi þar verið að finna kröfur til rekstr­ar­að­ila, um að þeir geti boðið fólki upp á að við­halda tveggja metra fjar­lægð. 



„Síðan er það nátt­úr­lega á ábyrgð hvers ein­stak­lings að halda þessa tveggja metra reglu eða ekki. Í þessu til­felli án þess að ég geti nokkuð fjallað meira um það þá sýnir þetta bara það að fólk verður að bera ábyrgð á sínum athöfn­um,“ sagði Þórólfur og bætti við að reglan ætti kannski frekar við um ein­stak­linga sem maður þekkir engin deili á.

Auglýsing


Lang­þráður frí­dagur

Um helg­ina gerði Þór­dís Kol­brún sér daga­mun með vin­konum sín­um. Frétta­blaðið sagði frá sam­veru vina­hóps­ins vegna þess að þar var tveggja metra reglan ekki í hávegum höfð. Í frétt Frétta­blaðs­ins segir að hluti þeirra mynda sem birt­ist af hópnum á sam­fé­lags­miðlum hafi nú verið eytt.





Þór­dís Kol­brún brást við frétta­flutn­ingnum með stöðu­upp­færslu á Face­book í gær þar sem hún sagði frí­dag­inn hafa verið lang­þráð­an. Hún hefði hlakkað mikið til dags­ins og hann hafi verið nær­andi. „En dag­­ur­inn í dag síður og ein­fald­­ara hefði verið að ákveða að vera ekki með þeim,“ sagði Þór­dís meðal ann­ars í stöðu­upp­færslu sinni. Hún sagði einnig að umfjöll­unin hefði bein­línis verið röng, þær hafi ekki farið út á lífið eins og full­yrt var í frétt­inni.



Í hádeg­is­fréttum RÚV í dag sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að hegðun Þór­dísar hefði verið óheppi­leg. „Ég held að ráð­herr­ann hafi svo sem svarað fyrir þetta að það hafi verið óheppi­legt að það væri ein­hver vafi á um það hvort að öllum reglum væri fylg­t,“ sagði Bjarni í hádeg­is­frétt­um.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent