19 milljarða virðisaukaskattstekjur af sölu lyfseðilsskyldra lyfja á síðustu fimm árum

Í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Þorsteins Sæmundssonar kemur fram að virðisaukaskattstekjur af sölu lyfseðilsskyldra lyfja á síðasta ári hafi numið rúmum 4,4 milljörðum króna.

Í fyrra námu tekjur ríkisins af virðisaukaskatti frá sölu á lyfseðilsskyldum lyfjum rúmum 4,4 milljörðum króna.
Í fyrra námu tekjur ríkisins af virðisaukaskatti frá sölu á lyfseðilsskyldum lyfjum rúmum 4,4 milljörðum króna.
Auglýsing

Tekjur rík­is­sjóðs af virð­is­auka­skatti vegna sölu á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum nemur að með­al­tali um fjórum millj­örðum króna á ári síð­ustu fimm ár á föstu verð­lagi árs­ins 2019. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­son­ar, þing­manns Mið­flokks­ins, um tekjur rík­is­sjóðs vegna sölu á lyf­seð­ils­skyldum lyfj­um. Lyf­seð­ils­skyld lyf eru í almennu þrepi virð­is­auka­skatts og bera því 24 pró­sent virð­is­auka­skatt.





Fyr­ir­spurn Þor­steins var svohljóð­andi: „Hverjar voru tekjur rík­is­sjóðs af virð­is­auka vegna sölu á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum hvert ár árin 2015–2019 á föstu verð­lag­i?“ Á tíma­bil­inu sem um ræðir nam heild­ar­verð­mæti lyf­seð­ils­skyldra lyfja sam­kvæmt skjala­kerfi Sjúkra­trygg­inga Íslands rúmum 97 millj­örð­um.

Auglýsing


Um fjórir millj­arðar í skatt­tekjur á ári

Á tíma­bil­inu námu tekjur rík­is­sjóðs af virð­is­auka­skatti vegna sölu lyf­seð­ils­skyldra lyfja alls tæpum 19 millj­örðum eða tæpum 3,8 millj­örðum á ári að með­al­tali. Tekj­urnar uxu ár frá ári, voru tæpir 3,3 millj­arðar árið 2015 en voru rúmir 4,4 millj­arðar árið 2019. 



Á föstu verð­lagi árs­ins 2019 námu virð­is­auka­skatts­tekjur rík­is­ins af sölu á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum að með­al­tali rúmum fjórir millj­örðum á ári. Eðli máls­ins sam­kvæmt uxu þær líka ár frá ári. Á föstu verð­lagi árs­ins 2019 námu tekj­urnar rúmum 3,1 millj­arði árið 2015, árið síðar námu þeir rúmum 3,6 millj­örð­um, árið 2017 námu þeir tæpum 4,1 millj­arði og árið 2018 rúmum 4,3 millj­örð­um.



Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir um stað­virð­ing­u:  „Við stað­virð­ingu til verð­lags árs­ins 2019 er miðað við að með­al­lyfja­verð­skrár­gengi evru vegi 85% og vísi­tala neyslu­verðs (VNV) vegi 15%.“



Mið­flokk­ur­inn vill að lyf séu á við­ráð­an­legu verði

Í stefnu Mið­flokks­ins sem finna má á vef flokks­ins segir meðal ann­ars að setja eigi stefnu um Sjúkra­trygg­ingar Íslands. „Greiðslu­þátt­taka sjúk­linga með lífsógn­andi sjúk­dóma verði felld nið­ur. Ráð­ast þarf í heild­ar­end­ur­skoðun vegna þeirra sem þurfa á þjón­ustu heil­brigð­is­kerf­is­ins að halda vegna lyfja- og ferða­kostn­að­ar.“



Þá segir þar einnig að flokk­ur­inn leggi áherslu á að sjúk­lingum verði ávallt ávísað virk­ustu lyfjum sem fyr­ir­finn­ast á mark­aðnum hverju sinni og að læknar og, eftir atvikum sjúk­ling­ar, „hafi greiðan aðgang að frum­lyfjum til ávís­unar á við­ráð­an­legu verð­i.“





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent