Icelandair fær ríkisábyrgð á lánalínu upp á 16,5 milljarða

Samkomulag hefur náðst um að Icelandair fái ríkisábyrgð á lánum frá ríkisbönkum. Alþingi þarf að samþykkja ábyrgðina.

Icelandair gamla lógó
Auglýsing

Íslensk stjórn­völd hafa ákveðið að veita Icelandair Group rík­is­á­byrgð á lána­línu upp á allt að 130 millj­ónir dala, eða 16,5 millj­arða króna. 

Auglýsing

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem send var út í dag. Ábyrgðin mun nema 90 pró­sent af láns­fjár­hæð­inni og er háð sam­komu­lagi aðila um skil­mála henn­ar, sam­þykki Alþingis og að félagið nái mark­miðum sínum um öflun nýs hluta­fjár.

Það er rík­is­bank­arnir tveir, Íslands­banki og Lands­bank­inn, sem munu veita lána­lín­una. 

Fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­­út­­­boði Icelandair Group var í gær frestað fram í sept­­em­ber. Upp­­haf­­lega stóð til að hluta­fjár­­út­­­boðið færi fram í júní en ekki náð­ist að standa við þá tíma­línu og því frestað fram í ágúst. Nú hefur það færst enn aft­­ar. 

Upp­­haf­­lega stóð til að safna allt að 200 millj­­ónum döl­um, um 27,5 millj­­örðum króna, í útboð­inu. Nú hefur verið ákveðið að lækka þá upp­­hæð og er nú stefnt að því að selja  nýja hluti fyrir 20 millj­­arða króna að nafn­verði á geng­inu ein króna á hlut. Það er mun lægra gengi en er á bréfum Icelandair í Kaup­höll Íslands en við lokun mark­aða í dag var það 1,64 krónur á hlut.  „Komi til umfram­eft­ir­­spurnar í hluta­fjár­­út­­­boð­inu, myndi stjórn félags­­ins hafa heim­ild til að auka hlutafé enn frekar um allt að 3 millj­­arða þannig að stærð útboðs­ins yrði að hámarki 23 millj­­arðar króna,“ sagði í til­­kynn­Ing­unni í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent