Þrjú innanlandssmit greindust í gær

Þrjú ný kórónuveirusmit greindust innanlands í gær, en alls voru 383 sýni tekin til greiningar á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Fjöldi fólks í sóttkví er kominn undir 500.

Tæplega 400 sýni voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær.
Tæplega 400 sýni voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær.
Auglýsing

Þrjú ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær, öll á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala, sem tók 383 sýni til grein­ing­ar. Alls eru nú 122 manns í ein­angrun með virkt smit á land­inu og 494 ein­stak­lingar eru í sótt­kví.

Áfram er einn ein­stak­lingur á sjúkra­húsi, en sá er ekki á gjör­gæslu. 14 daga nýgengi inn­an­lands­smita er nú komið í 18,5 á hverja 100.000 íbúa hér á landi. Þetta kemur fram á covid.­is.

Tvö af þeim þremur sem greindust með smit inn­an­lands í gær voru í sótt­kví, en alls 51 pró­sent þeirra sem greinst hafa með veiruna hér inn­an­lands frá 15. júní hafa verið í sótt­kví þegar sýni úr þeim voru tek­in.

Að minnsta kosti tíu virk smit á landa­mær­unum á tveimur dögum

Á sunnu­dag­inn fengu níu manns jákvæða svörun við COVID-19 prófi á landa­mær­un­um. Sjö þeirra reynd­ust vera með virk smit, einn með mótefni fyrir veirunni og enn er beðið eftir mótefna­mæl­ingu hjá þeim síð­asta.

Auglýsing

Í fengu svo sex manns jákvæða svörun við prófi á landa­mær­unum og að minnsta kosti þrjú eru með virk smit, en enn þá er beðið eftir nið­ur­stöðum úr mótefna­mæl­ingu hjá þrem­ur. ­Rúm­lega tvö þús­und próf voru tekin á landa­mær­unum hvorn dag.

Á mið­nætti taka gildi nýjar og hert­ari reglur á landa­mærum Íslands, en þá munu allir sem til lands­ins koma þurfa að fara í skimun og að því búnu í 4-5 daga sótt­kví, áður en þeir fara aftur í sótt­kví.

Búast má við að sú ráð­stöfun dragi veru­lega úr ferða­vilja bæði til og frá land­inu á næst­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent