Aðgerðir sem áttu að kosta 30 milljarða hafa enn sem komið er kostað tvo milljarða

Lokunastyrkir og stuðningslán áttu að kosta yfir 30 milljarða króna. Enn sem komið er nema útgreiðslur vegna aðgerðanna vel undir tíu prósent af þeirri upphæð sem áætlað var að þær myndu kosta.

Aðgerðir fyrir lítil fyrirtæki voru hluti af aðgerðarpakka tvö, sem kynntur var af forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar 21. apríl síðastliðinn.
Aðgerðir fyrir lítil fyrirtæki voru hluti af aðgerðarpakka tvö, sem kynntur var af forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar 21. apríl síðastliðinn.
Auglýsing

Aðgerðir fyrir lítil fyr­ir­tæki, svo­kall­aðir lok­un­ar­styrkir og stuðn­ings­lán, áttu að fela í sér útgjöld upp á rúm­lega 30 millj­arða króna. Nú, fjórum mán­uðum eftir að aðgerð­irnar voru kynnt­ar, er sam­an­lagður kostn­aður við þær um tveir millj­arðar króna.

Þetta má lesa út mæla­borði um stöðu aðgerða sem stjórn­völd hafa gripið til vegna COVID-19, sem birt var á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins á þriðju­dag.

Þegar stjórn­völd kynntu annan aðgerða­pakka sinn vegna efna­hags­á­hrifa heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru var meðal ann­ars kynntur til leiks sér­stakur pakki fyrir lítil fyr­ir­tæki. 

Auglýsing
Í honum voru ann­ars vegar svo­kall­aðir lok­un­ar­styrkir sem áttu að greið­ast til fyr­ir­tækja eða ein­yrkja sem þurftu að loka starf­semi sinni vegna lög­boðs stjórn­valda í tengslum við sótt­varn­ar­að­gerðir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómn­um.

Styrkirnir voru í boði fyrir þau fyr­ir­tæki sem gátu sýnt fram á að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­fall og að þau væru með opin­ber gjöld í skil­um. Hver aðili myndi geta fengið allt að 800 þús­und krónur fyrir hvern starfs­mann en 2,4 millj­óna króna styrk að hámarki. Áætlað var að styrkirnir myndu geta náð til allt að tvö þús­und fyr­ir­tækja.

18. ágúst höfðu 170 umsóknir borist með reikn­uðum styrk upp á 196,5 millj­ónir króna. Af þeim hafa 125 umsóknir verið sam­þykktar og útgreiðslur nema 137 millj­ónum króna.

Lánin áttu að vera 28 millj­arðar en eru undir tveimur

Hitt megin úrræðið í aðgerð­ar­pakka stjórn­valda fyrir lítil fyr­ir­tæki voru svokölluð stuðn­ings­lán, einnig kölluð sér­stök lán til lít­illa fyr­ir­tækja. Til að telj­ast til slíkra fyr­ir­tækja þurfti að vera með tekjur undir 500 millj­ónum króna á ári. Lán­in, sem njóta 100 pró­sent rík­is­á­byrgð­ar, standa ein­ungis fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­falli til boða, sem er sama skil­yrði og gildir fyrir hin svoköll­uðu brú­ar­lán til stærri fyr­ir­tækja sem kynnt voru til leiks mán­uði áður.

Lánin til fyr­ir­tækj­anna átti að verða hægt að sækja um með ein­földum hætti á Island.is en þau nema að hámarki sex millj­ónir krónur á hvert fyr­ir­tæki. Heild­ar­um­fang lán­anna átti að geta orðið allt að 28 millj­arðar króna í heild, að mati stjórn­valda. 

Þann 18. ágúst höfðu alls 567 umsóknir um stuðn­ings­lán borist og heild­ar­fjár­hæð umsókna var 5,1 millj­arður króna. Búið var að afgreiða undir helm­ing umsókna, eða 237, og greiða út alls 1,9 millj­arða króna í stuðn­ings­lán. 

Þegar aðgerð­irnar voru kynntar reikn­uðu stjórn­völd með að heild­ar­út­gjöld vegna þess­ara tveggja aðgerða gætu numið rúm­lega 30 millj­örðum króna. Enn sem komið er eru þau um tveir millj­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent