Fjögur innanlandssmit greindust í gær

Fjögur ný kórónuveirusmit greindust innanlands í gær en alls voru 465 sýni tekin til greiningar á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Virk smit í samfélaginu standa í stað og eru 122.

Nú þurfa allir farþegar sem koma til landsins að fara í tvöfalda skimun eða sæta tveggja vikna sóttkví.
Nú þurfa allir farþegar sem koma til landsins að fara í tvöfalda skimun eða sæta tveggja vikna sóttkví.
Auglýsing

Fjögur ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær, öll á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala sem tók 465 sýni til grein­ing­ar. Hlut­fall jákvæðra sýna var því innan við eitt pró­sent. Þrír ein­stak­lingar af þeim fjórum sem greindust í gær voru í sótt­kví. Ekk­ert smit greind­ist í skimun Íslenskrar erfða­grein­ingar sem greindi 39 sýni.



Í ein­angrun eru nú 122 ein­stak­ling­ar, jafn margir og í gær. Virk smit standa þar af leið­andi í stað. Enn heldur áfram að fækka í sótt­kví, nú eru 472 ein­stak­lingar í sótt­kví en í gær voru þeir 494. Einn ein­stak­lingur liggur á sjúkra­húsi vegna COVID-19 líkt og í gær, þó ekki á gjör­gæslu.

Auglýsing



14 daga nýgengi inn­an­lands­smita lækkar á milli daga og er nú komið í 17,2 á hverja 100.000 íbúa hér á land­i ­sam­kvæmt nýj­ustu tölum á covid.is. Nýgengi inn­an­lands­smita var í gær 18,5 á hverja 100.000 íbúa.





Breyttar reglur á landa­mærum hafa tekið gildi

Í landamæra­skimun voru tekin 2678 sýni. Tveir ein­stak­lingar greindust með virkt smit en þrír bíða eftir mótefna­mæl­ingu. Nýgengi landamæra­smita er nú 12,3 en var í gær 11,2.



Frá og með deg­inum í dag hafa far­þegar sem koma til lands­ins val um að fara í tvær sýna­tökur vegna COVID-19 með um fimm daga sótt­kví á milli eða sleppa sýna­töku og fara í tveggja vikna sótt­kví. „Krafa um skimun og sótt­kví nær til þeirra sem hafa dvalið í meira en sól­ar­hring síð­ast­liðna 14 daga í löndum sem skil­greind eru af sótt­varna­lækni sem áhættu­svæði en sem stendur gildir það um öll lönd. Börn fædd árið 2005 eða síðar eru und­an­þegin sýna­töku og sótt­kví og sama gildir um þá sem íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa stað­fest með PCR-­prófi að hafi áður fengið COVID-19 sýk­ingu og lokið ein­angr­un, eða ef COVID-19 sýk­ing hefur verið stað­fest með mótefna­mæl­ing­u,“ segir um nýju regl­urnar á vef stjórn­ar­ráðs­ins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent