Greiðslur vegna launa í sóttkví mun lægri en reiknað var með

Kostnaður ríkissjóðs vegna launagreiðslna til þeirra sem hafa þurft að sæta sóttkví eru einungis um tíu prósent af því sem gert hafði verið ráð fyrir. Kostnaðurinn nemur 191 milljón króna en hafði verið áætlaður um tveir milljarðar króna.

Á þriðja tug þúsund manns hafa lokið sóttkví á Íslandi.
Á þriðja tug þúsund manns hafa lokið sóttkví á Íslandi.
Auglýsing

Alls hafa verið greiddar út 191 milljón króna vegna launa fólks sem þurft hefur að fara í sótt­kví vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, en hægt var að sækja um greiðslu frá Vinnu­mála­stofnun vegna þessa til 1. júlí síð­ast­lið­ins. 

Gert hafði verið ráð fyrir því að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna launa­greiðslna í sótt­kví yrði um tveir millj­arðar króna og því ljóst að heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna aðgerð­ar­innar verður mun lægri en áður var talið. 

Þetta kemur fram í minn­is­blaði Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem inni­heldur yfir­lit yfir stöðu stærstu efna­hags­að­gerða stjórn­valda vegna COVID-19, og var lagt fyrir rík­is­stjórn síð­ast­lið­inn föstu­dag. 

Þar segir enn fremur að mun færri hafa nýtt sér úrræðið en reiknað var með „þrátt fyrir að 23.604 hafi lokið sótt­kví frá því í lok febr­ú­ar.“ 

Sam­komu­lag við upp­haf far­ald­urs

Rík­­is­­stjórn­­in, Sam­tök atvinn­u­lífs­ins og Alþýð­u­­sam­­band Íslands komust að sam­komu­lagi um hvernig staðið verði að launa­greiðslum til fólks sem þarf að vera í sótt­­­kví vegna COVID-19 5. mars síð­ast­lið­inn, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var farin að láta veru­lega á sér kræla hér­lend­is. 

Auglýsing
Í sam­eig­in­­legri til­­kynn­ingu frá aðil­unum þremur kom fram að í sam­komu­lag­inu fælist að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins myndu beina þeim til­­­mælum til atvinn­u­rek­enda að laun yrðu greidd til ein­stak­l­inga sem sæta sótt­­­kví að fyr­ir­­mælum heil­brigð­is­yf­­ir­­valda og að Alþýð­u­­sam­­band Íslands myndi beina þeim til­­­mælum til aðild­­ar­­sam­­taka sinna að sjóð­­fé­lagar í sjúkra­­sjóðum þeirra sem sýkj­­ast nytu  óskertra greiðslna úr sjóð­unum að tæmdum veik­inda­rétt­i.  

Stjórn­völd myndu svo beita sér fyrir því að breyt­ingar yrðu gerðar á lögum um sjúkra­­trygg­ingar í þá veru að atvinn­u­rek­andi sem greiðir launa­­manni, sem sætt hefur eða mun sæta sótt­­kví, laun, „geti krafið sjúkra­­trygg­ingar um end­­ur­greiðslu kostn­aðar upp að ákveðnu hámarki séu til­­­teknar aðstæður fyrir hendi eins og til dæmis að launa­­maður geti ekki sinnt vinnu heiman frá sér.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent