Landsmenn tekið út tvisvar sinnum meiri séreignarsparnað en reiknað var með

Þegar ríkisstjórnin heimilaði landsmönnum að taka út eigin séreignarsparnað vegna COVID-19 þá bjóst hún við að um tíu milljarðar króna færu út kerfinu. Nú lítur út fyrir að sú upphæð verði næstum 20 milljarðar króna.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Alls hafa tæp­lega sjö þús­und lands­menn tekið úr 14,5 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum eftir að það var heim­ilað í fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórn­ar­innar til að bregð­ast við áhrifum kór­ónu­veirunn­ar, sem fram fór 21. mars síð­ast­lið­inn. 

Fram til næstu ára­móta eru áætl­aðar greiðslur upp á 18 millj­arða króna. Í heild­ina eru áætl­aðar útgreiðslur sem nema 19,8 millj­örðum króna sem dreifast fram í mars 2022. Í upp­hafi var reiknað með að umfang þessa úrræðis yrði tíu millj­arðar króna á 24 mán­aða tíma­bili og því stefnir í að úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði verði tvisvar sinnum það sem búist var við. 

Þetta kemur fram í minn­is­blaði Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um yfir­lit yfir stöðu stærstu efna­hags­að­gerða vegna COVID-19, sem kynnt var í rík­is­stjórn 14. ágúst síð­ast­lið­inn. Miðað við þetta er með­al­greiðsla á hvern þann sem hefur nýtt sér úrræðið um hálf milljón króna.

Fækkar í hópi þeirra sem nýta úrræðið

Heim­ildin felur í sér að ein­stak­lingum er gert kleift að ganga á eigin sparn­að, en þeir þurfa hins vegar að greiða skatt af honum við útgreiðslu líkt og ef þeir tækju hann út á efri árum. Aðgerðin er því tekju­öfl­un­ar­að­gerð fyrir rík­is­sjóð. Margir lands­menn nýta nú þegar sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­lán, en ef sú leið er valin nýtur útgreiðslan skatt­frels­is.

Auglýsing
Í minn­is­blað­inu kemur fram að heldur hafi fækkað í hópnum sem fær greitt út í hverjum mán­uði. Í byrjun yfir­stand­andi mán­aðar voru 2,2 millj­arðar króna greiddir út til 4.365 ein­stak­ling­ar. Mán­uði fyrr voru greiddir út þrír millj­arðar króna til 5.798 ein­stak­linga. 

Opið er fyrir umsóknir út þetta ár þannig að heild­ar­um­fang aðgerð­ar­innar verður ekki ljóst fyrr en að þeim tíma liðnum en hver ein­stak­lingur má taka út allt að 12 millj­ónum króna. Útgreiðslan dreif­ist með jöfnum greiðslum á allt að 15 mán­aða tíma­bil að hámarki 800 þús­und á mán­uði.

Þjóðin þegar búin að eyða miklu af sér­eign

Sam­bæri­leg aðgerð var sett í gang í kjöl­far banka­hruns­ins. Þá tóku lands­menn um fjórð­ung af öllum sér­eign­ar­sparn­aði í land­inu út úr kerf­inu, eða hátt í 100 millj­arða króna.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr á þessu ári að um síð­ustu ára­mót höfðu lands­menn nýtt 73,5 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum til að greina niður hús­næð­is­lán eða sem útgreiðslu fyrir íbúð frá því að úrræðin tóku gildi um mitt ár 2014. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent